Matur hefur lækkað um þriðjung 18. maí 2005 00:01
Vöruverð hefur lækkað umtalsvert hjá Krónunni, Bónus og í Fjarðarkaupum síðan um áramótin en mun minna hjá öðrum verslunum samkvæmt þriðju verðkönnun Alþýðusambands Íslands sem birt var í gær. Er þetta þriðja könnun samtakanna á þessu ári og vekur athygli að vöruverð hefur hvergi hækkað síðan síðasta könnun var gerð um miðjan mars. Áberandi mikill munur er milli lágvöruverslana og annarra stórmarkaða á hæsta og lægsta verði og reyndist munurinn á dýrustu og ódýrustu vörukörfunni þannig vera um hundrað prósent. Er það mun meiri munur en mælst hefur áður í öðrum könnunum ASÍ. Mest hlutfallsleg lækkun á vöruverði mældist í Bónus en vörukarfan þar lækkaði um 37 prósent milli kannanna. Í Krónunni lækkuðu verð um 33 prósent. Aðrar verslanir standa þeim nokkuð að baki. Í Fjarðarkaupum lækkaði karfan um tæp fimmtán prósent, tæp tíu prósent í Samkaupum en minna en sex prósent hjá Nóatúni, Hagkaupum og Sparkaupum. Reyndar meta samtökin það svo að ólíklegt verði að teljast að þessi mikli munur fái staðist til lengdar og reikna með að saman dragi með verslunum þegar fram líða stundir en þangað til njóta neytendur góðs af. Í umræddri vörukörfu voru algengar mjólkurvörur, ávextir, grænmeti, morgunkorn, kaffi, ostur og brauð eða vörur sem að jafnaði sjást á borðum fjölskyldna hér á landi. Mest lækkun í Bónus reyndist vera á fjórum lítrum af nýmjólk en lækkunin frá því í febrúar reyndist vera 65.8 prósent. Hjá Krónunni reyndist kíló af grænum vínberjum hafa lækkað mest eða um 67.6 prósent og 150 gr. af Camembert osti lækkaði hlutfallslega mest í Fjarðarkaupum eða um 35.2 prósent. Fólki er bent á að kynna sér könnunina á heimasíðu Alþýðusambandsins, asi.is.
Fréttir Innlent Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira