Grænmetissnakk á markað 20. ágúst 2005 00:01
Sælgætispökkunarvélar eru notaðar til að pakka nýjasta snakkinu á markaðnum inn í umbúðir. Það hljómar kannski ekki vel en staðreyndin er sú að innihaldið er eitt hollasta snakk sem fáanlegt er á markaðnum. Íslenska grænmetið streymir á markaðinn þessa dagana sem aldrei fyrr og nú má sjá nýjung, íslenskt grænmeti sem snakk. Í fyrstu verður boðið upp á fjórar tegundir: radísur, brokkolí, gulrætur og blómkál. Gunnlaugur Karlsson, framkvæmdastjóri Sölufélags garðyrkjumanna, segir að verið sé að bregðast við eftirspurn neytenda eftir hollu snakki. Sölufélagið hafi fengið fjölgmargar fyrirspurnir um hvort ekki sé hægt að vinna meira úr grænmetinu og hafa það meira tilbúið. Nú sé það orðið raunin. Gunnlaugur segir þróunina hafa verið þá að fólk vilji meiri þægindi og nú sé komin vörulína sem sé hugsuð sem skyndifæði. Það sé sælgætispökkunarvél sem pakki vörunni, en garðyrkjumenn vilji meina að þetta sé sælgæti en um leið hollustuvara. Gunnlaugur er bjartsýnn á að grænmetissnakkið verði vinsælt í nestispökkum skólakrakkanna sem skunda í skólana í næstu viku. Hann segir reynsluna hafa sýnt það að salan taki mikinn kipp þegar skólarnir byrji. Það virðist mikil áhersla á hollustu í september og aftur í janúar og salan fari mjög vel af stað þetta árið. Gunnlaugur skorar á alla, unga sem aldna, að prófa að skipta hinu hefðbundna snakki út af og til fyrir grænmetissnakkið. Ef fólk setji það í skál fyrir framan sjónvarpið lofi hann því að hún verið tóm þegar kvöldið er úti.
Fréttir Innlent Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Fleiri fréttir Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Sjá meira