Innlent

Fjöldi veiðimanna í Árnessýslu

Töluverður fjöldi rjúpnaveiðimanna var á ferð um uppsveitir Árnessýslu í gær þegar veiðitímabilið hófst og hafði lögregla á Selfossi eftirlit með þeim. Lögreglu barst ein tilkynning um skyttu á veiðum á óleyfilegum stað og þegar betur var að gáð hafði hún ruglast og farið öfugum megin girðingar sem skilur að veiðisvæði og bannsvæði. Þá var björgunarsveitin Ingunn á Laugarvatni kölluð út til að aðstoða rjúpnaveiðimann sem hafði fest bíl sinn og gekk greiðlega að losa hann. Skilyrði til veiða á þessum slóðum eru ekki eins góð í dag og í gær, en nokkur úrkoma og þoka er á svæðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×