Erlent

Fordæmdi hjónabönd samkynhneigðra

Hjónabönd samkynhneigðra eru gervihjónabönd, fóstureyðingar á að banna og takmarkanir skulu vera á frjósemisaðgerðum. Þannig hljóma skilaboð páfa til heimsbyggðarinnar. Á trúarráðstefnu í Róm í gær sá páfi ástæðu til að margítrekað skilning sinn á hjónabandi sem heilagrar sameiningu karls og konu. Hann sagði að hin margvíslegu form sundrungar hjónabandsins nú á dögum, eins og frjáls sambönd, reynsluhjónabönd og gervihjónabönd fólks af sama kyni lýstu stjórnleysi sem ranglega hefði verið talið hið sanna frelsi mannsins. Slíkt sýndarfrelsi byggðist á lágkúruvæðingu líkamans sem óhjákvæmilega leiddi af sér lágkúruvæðingu mannsins. Þetta viðhorf kemur ekki á óvart, en í kardínálatíð páfa gaf hann út leiðbeiningar fyrir kaþólska stjórnmálamenn sem áttu að beita sér gegn lagabreytingum sem heimuluðu samkynhneigðum að ganga í hjónaband. Á þeim tíma var hann einnig öflugur baráttumaður gegn fóstureyðingum. Næsta sunnudag ganga Ítalir til þjóðaratkvæðagreiðslu um lagabreytingu sem meðal annars felur í sér að fóstur njóti ekki lengur sömu réttinda og fædd börn. Þá verður einnig kosið um hvort fella eigi úr gildi lagaákvæði sem takmarka frjósemisaðgerðir. Páfa virðist því ekki hafa þótt vanþörf á að koma þeim skilaboðum á framfæri að slíkt væri ótækt og í því fælist ógn við hefðbundnar hugmyndir um fjölskyldu og lífið sjálft.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×