Erlent

Pinochet sæti fjársvikaákæru

Áfrýjunardómstóll í Chile hefur svipt Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra landsins, friðhelgi þannig að hægt verði að sækja hann til saka fyrir skattsvik og annars konar fjármálamisferli. Chileskur dómari hóf að rannsaka fjármál Pinochets í fyrra og komst að því að einræðisherrann fyrrverandi hefði ásamt fjölskyldu sinni falið hátt í 17 milljónir dollara, rúman einn milljarð króna, á bankareikningum erlendis en auk þess er honum gefið að sök að hafa notað fölsuð vegabréf og reynt að skjóta undan skatti. Lögmenn hins 89 ára gamla Pinochets búast við að áfrýja dóminum til Hæstaréttar Chiles. Þetta er í þriðja sinn sem áfrýjunardómstóll sviptir Pinochet friðhelgi sem hann hefur notið sem fyrrverandi forseti Chile. Í hinum tveimur tilvikunum var hann ákærður fyrir mannréttindabrot í stjórnartíð sinni, á árunum 1973-1990, en talið er að 3000 manns hafi látist í ofsóknum gegn pólitískum andstæðingum hans og þá voru tugir þúsunda fangelsaðir og pyntaðir. Öðru málinu var vísað frá Hæstarétti vegna þess að talið var að hann væri of gamall til að þola réttarhöld en hinu er ólokið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×