Erlent

Fjölbýlishús hrynur í Egyptalandi

Lítið barn lét lífið þegar íbúðarblokk hrundi til grunna í borginni Alexandríu í Egyptalandi í dag. Óttast er að fleiri hafi farist og séu grafnir undir húsarústunum, en sextán manns slösuðust. Byggingin sem hrundi var upprunalega þriggja hæða en að sögn lögerglunnar í Alexandríu hafði aukahæðum verið bætt við hana án tilskilinna byggingaleyfa.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×