Erlent

Lúxemborgarar tekjuhæstir í Evrópu

Lúxemborgarar eru tekjuhæstir Evrópubúa og gnæfa yfir önnur Evrópulönd þegar þjóðarframleiðsla á mann er metin. Samkvæmt tölum evrópsku hagstofunnar var þjóðarframleiðsla á hvern íbúa Lúxemborgar árið 2004 ríflega tvöfalt meiri en að jafnaði í ríkjum Evrópusambandsins. Norðmenn eru í öðru sæti, en tekjur þeirra eru 53 prósent yfir meðalþjóðartekjum, Írar í þriðja sæti og Svisslendingar í því fjórða. Síðan koma Danir, Austurríkismenn, Hollendingar, Bretar og Belgar en Íslendingar eru í tíunda sæti ásamt Svíum með þjóðartekjur sem mælast sextán prósentum yfir meðaltekjum í Evrópu. Lægstu þjóðartekjurnar eru í Rúmeníu, Búlgaríu og Tyrklandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×