Erlent

Ellefu lögreglumenn féllu í Írak

Að minnsta kosti ellefu lögreglumenn létu lífið í skærum í austurhluta Bagdad í gær og andspyrnumenn réðu íraskan dómara af dögum. Átök brutust út í austurhluta borgarinnar þegar lögreglumenn skutu að mönnum sem dreifðu bæklingum til fólks þar sem það var hvatt til að kjósa ekki í kosningunum á sunnudag. Um svipað leyti féllu sjö lögreglumenn í fyrirsát skammt hjá. Þá sprakk sprengja í grennd við skóla og bandarískir og íraskir hermenn skiptust á skotum við andspyrnumenn. Búist er við að skærurnar harðni eftir því sem nær dregur kosningum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×