Hundruð við útför Ziyangs 29. janúar 2005 00:01
Hundruð voru í morgun við útför Zhaos Ziyangs sem var formaður kínverska Kommúnistaflokksins þegar atburðirnir á Torgi hins himneska friðar urðu árið 1989. Fólkið lét ekki lögreglueftirlit hræða sig en ráðamenn óttuðust að útförin yrði tilefni til mótmæla og rósturs. Zhao var einn fárra kínverskra ráðamanna sem taldi rétt að hlusta á lýðræðislegar umbótahugmyndir stúdentanna sem mótmæltu á Torgi hins himneska friðar árið 1989 en aðrir í flokknum vildu taka á þeim af hörku. Hundruð stúdenta voru drepin á torginu í áhlaupi hersins og Zhao féll í ónáð í kjölfarið. Það sem eftir var ævinnar var hann í stofufangelsi. Stjórnvöld höfðu af því miklar áhyggjur að fráfall hans yrði til að vekja minningar um atburðina fyrir 16 árum og gæti leitt til mótmæla. Því voru lögreglubílar á öllum götuhornum í nánd við útförina í morgun og lögreglumenn grandskoðuð skilríki þeirra sem voru viðstaddir en það voru einungis boðsgestir. Þrátt fyrir þetta voru hundruð manna í grennd og minntust Zhaos. Til að dreifa athyglinni frá Zhao var útförin haldin sama dag og fyrsta beina flugið í hálfa öld á milli Kína og Taívan var flogið. Sú ferð var sýnd beint í kínverska sjónvarpinu en aðeins var minnst stuttlega á fráfall Zhaos. Í fréttaskeyti kínversku fréttastofunnar Xinhua var fjallað um jákvæð áhrif Zhaos á efnahagsumbætur í Kína en jafnframt tekið fram að hann hefði gert alvarleg mistök í tengslum við stjórnmálaumrót vorið og sumarið 1989. Ekki er þó farið nánar út í þá sálma.
Erlent Fréttir Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Sjá meira