Síldin betri en olíulind 19. júní 2005 00:01
Ágætis veiði hefur verið á síldarmiðunum austur af landinu undanfarna daga, en nær alveg hefur tekið fyrir hana síðasta sólarhringinn. Bjarni Ólafsson frá Akranesi fékk til dæmis síld um 40 sjómílur beint austur af Norðfirði í vikunni, en skipin hafa verið mun utar. "Þetta er mikil veisla og rífandi síldarstemmning hér eystra," segir Magnús Þór Hafsteinsson þingmaður og fiskifræðingur, en hann er skipverji á Bjarna Ólafssyni frá Akranesi þessa dagana. Birkir Hreinsson skipstjóri á fjölveiðiskipinu Vilhelm Þorsteinssyni segir að síldveiðiskipin séu nú að leit. "Flotinn hefur verið að lóða á síld víða um sjó en veiðin hefur einkum verið úti við Rauða torgið, djúpt út af Austfjörðum. Sú norsk-íslenska er dyntótt. Við fengum afla aðfaranótt laugardags en skyndilega tók alveg fyrir veiðina og nú ætlum við að leita norður með Austurlandi," segir Birkir. Vilhelm Þorsteinsson var að landa síldarafskurði til bræðslu í Neskaupstað þegar Fréttablaðið hafði samband við Birki skipstjóra í gær. Líkt og á öðrum nútímalegum fjölveiðiskipum er síldin flökuð og fryst um borð, en ágætt verð fæst fyrir hana á erlendum mörkuðum um þessar mundir. "Við reynum að taka ekki meira en 200 tonn í flotvörpuna þegar vel gefur, þannig að við höfum undan við frystinguna. Við getum fryst allt að 150 tonnum á sólarhring og þegar best lætur fyllum við skipið á fjórum sólarhringum," segir Birkir. Um níutíu krónur fást fyrir kílóið af frystum síldarflökum um þessar mundir en afurðirnar eru einkum fluttar til Póllands og þaðan til annarra Evrópulanda. Aflaverðmæti Vilhelms Þorsteinssonar er vart undir 50 til 60 milljónum króna á viku um þessar mundir og ætla má að það eigi við um fleiri skip sem frysta flök um borð. "Nú er bara að veiða síld eins og við getum fyrir fánann og fósturjörðina. Því meir sem við veiðum nú, þeim mun betri verður samningsstaða okkar gagnvart Norðmönnum um veiðar á þeirri norsk-íslensku á næstu misserum," segir Magnús Þór Hafsteinsson.
Fréttir Innlent Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira