R-listinn virðist í andarslitrunum 12. ágúst 2005 00:01
Dagar R-listans virðast taldir. Svartsýni um áframhaldandi samstarf ríkir í herbúðum þeirra þriggja flokka sem að honum standa og vilji Vinstri-grænna og Samfylkingar til samstarfs er lítill sem enginn. Vandræðagangurinn sem einkennt hefur samningaviðræður R-lista flokkanna virðist hafa leitt til þess eins að hver höndin er nú upp á móti annarri. Þegar upp úr slitnaði hjá viðræðunefndinni í gærkvöldi varð ljóst að R-listasamstarfinu gæti lokið á næstu sólarhringum þótt flokkarnir séu líklegir til að halda saman fram að kosningum næsta vor á sama tíma og þeir heyja kosningabaráttu sín á milli. Næstu skref verða ákveðin innan flokksfélaganna í næstu viku. Hemildir fréttastofu Stöðvar 2 úr röðum Vinstri - grænna herma að nánast útilokað sé að flokksfélagið í Reykjavík samþykki að ganga aftur til viðræðna um myndun R-listans. Slíkir séu brestirnir á milli Vinstri - grænna og Samfylkingarinnar. Aftur á móti segja heimildarmenn innan Samfylkingar að fulltrúar Vinstri - grænna hafi fyrir nokkrum dögum verið búnir að ákveða að slíta samstarfinu. Þeir hafi einungis fundað fram á síðustu stundu til að geta kennt Samfylkingunni um samstarfsslitin og komið þannig sterkari út úr stöðunni. Á meðan reynir Samfylkingarfólk að snúa málinu sér í hag með því að segja að enn sé von. Því megi skella skuldinni á Vinstri - græna þegar upp úr slitni. Framsókn virðist sitja á hliðarlínunni í þessari baráttu en samkvæmt heimildum fréttastofu voru framsóknarmenn tilbúnir í nánast hvað sem er til að halda samstarfinu áfram. Hvað óháða innan R-listans varðar þá hafa þeir frá fyrstu tíð haft sterka stöðu innan listans. Dagur B. Eggertsson hefur nú látið hafa eftir sér að hann muni ekki bjóða fram krafta sína í komandi kosningum nái R-listaflokkarnir ekki saman, en hann hefur lengi verið ein helsta vonarstjarna R-listans. Samfylkingarmenn virðast taka þeirri yfirlýsingu létt og segja að með þessu sé Dagur einungis að minna á sig og sína stöðu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir í Fréttablaðinu í dag að ekki sé öll nótt úti enn um R-lista samstarfið þrátt fyrir að viðræðunefndin hafi gefist upp en nánast allir sem fréttastofan hefur rætt við telja möguleikana á samstarfi nánast enga úr þessu og mjög ólíklegt, ef ekki ómögulegt, sé að flokksfélögin komist að annarri niðurstöðu. Dagar Reykjavíkurlistans virðast taldir.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira