Tugþúsundir barna í reiðileysi 14. janúar 2005 00:01
Hjálparstofnanir og yfirvöld í viðkomandi löndum hafa miklar áhyggjur af tugþúsundum barna sem misstu foreldra sína í flóðbylgjunni í Asíu. Enginn veit með vissu hversu mörg börn eru munaðarlaus eftir flóðbylgjuna á annan í jólum. En miðað við að yfir 160 þúsund manns fórust, og fjölskyldur eru barnmargar á þessum slóðum, má búast við að þau skipti tugum þúsunda. Fátækt er einnig mikil, ekki síst í Indónesíu þar sem manntjónið var mest, þannig að framtíðin er ekki björt fyrir þessi börn. Hjálparstofnanir og ríkisstjórnir landanna hafa skiljanlega af þessu miklar áhyggjur. Mörg börn eiga ekki í nein hús að venda og það þarf því að sjá fyrir daglegum þörfum þeirra. En það er ekki eini vandinn. Þessi börn hafa orðið fyrir óskaplegu andlegu áfalli og litla hjálp að hafa á því sviði. En það voru líka foreldrar sem lifðu og misstu börn sín. Á sjúkrahúsi í Sri Lanka er t.a.m. þriggja mánaða gamall drengur sem enginn veit hver á. Hann er einfaldlega kallaður barn númer 81. Níu mæður sem sakna þriggja mánaða sonar hafa gert tilkall til hans. Þetta fólk er skiljanlega í mikilli geðshræringu og hefur bæði hótað að fremja sjálfsmorð og myrða læknana ef það fær ekki barn númer 81. Auðvitað er hægt að skera úr þessu með DNA-prófi en það kostar þúsundir dollara að senda hvert sýni til Bretlands og enginn hefur efni á því. Ofan á allt þetta bætist að, hversu ótrúlegt sem það kann að vera, þá eru komnir á flóðasvæðin barnaníðingar sem reyna að notfæra sér ástandið til þess að verða sér úti um börn sem enginn kemur til með að sakna. Þegar hafa mörg slík tilfelli komið upp og nokkrir verið handteknir. Hins vegar veit enginn hversu margir hafa sloppið með ránsfeng sinn.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fleiri fréttir Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Sjá meira