Sagður hafa vanrækt störf sín 25. apríl 2005 00:01
Séra Hans Markús Hafsteinsson sóknarprestur í Garðaprestakalli misnotaði stöðu sína til að fá stuðning og samúð sóknarbarna með því að koma trúnaðargögnum til þeirra. Þetta kemur fram í úrskurði úrskurðunarnefndar þjóðkirkjunnar. Einnig telur nefndin að hann hafi brotið af sér í starfi með því að senda vinnuveitenda eiginmanns djáknans bréf með stimpli Garðasóknar. Reyndi hann þannig að koma höggi á eiginmann djáknans en hann hafði áreitt sóknarprestinn með smáskilaboðum úr farsíma. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri stætt á öðru en séra Hans Markús yrði fluttur til í starfi vegna aga- og siðferðisbrota. Matthías G. Pétursson sóknarformaður og Arthur Farestveit varaformaður sögðu í kærunni til úrskurðarnefndar að séra Hans Markús hefði flæmt fólk frá störfum við sóknina auk þess sem hann væri ófær um eðlileg samskipti við samstarfsfólk. Þannig á hann til dæmis að hafa hagrætt sannleikanum til að ná þeirri niðurstöðu í málum sem honum væri þóknanleg. Séra Hans Markús er jafnframt sagður hafa vanrækt ýmis störf sem hann átti að inna af hendi. Sóknarnefndarmaður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði að annað starfsfólk hefði farið að vinna störfin fyrir prestinn og síðan farið að "kóa" með honum. Í kærunni kemur fram að þeir Matthías og Arthur telja að orðfæri séra Hans Markúsar sé ekki sæmandi manni í hans stöðu. Þannig á hann til dæmis að hafa brugðist svo harkalega við þegar Nanna Guðrún Zoëga djákni bar fram kvörtun á hendur honum á sóknarfundi að Arthur varð að skerast í leikinn og stöðva séra Hans Markús af áður en ummæli hans færu að verða svo meiðandi að það kynni að hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér. Séra Hans Markús var afar ósáttur við úrskurðinn en hann var sjálfur málshefjandi og krafðist þess að séra Friðrik J. Hjartar og Nanna Guðrún Zoëga yrðu flutt til í starfi og Matthíasi og Arthuri veitt áminning. Óvíst er hvort hann áfrýjar úrskurðinum.
Fréttir Innlent Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira