Árásahrina í Írak í dag 26. janúar 2005 00:01
Allt logaði í Írak í dag. Hrina árása kostaði ekki færri en sjö lífið og fjöldi særðist. Áætlað er að stíðsreksturinn kosti Bandaríkjamenn um hálfan milljarð á klukkustund. Dagurinn hófst með átökum hersveita og uppreisnarmanna í Ramadi. Sprengju var varpað á bílalest þar og skothríð fylgdi í kjölfarið. Íraki féll og nokkrir særðust. Í Tíkrít sprakk sprengja við bæjarskrifstofurnar þar skömmu áður en Iyad Allawi, forsætisráðherra Íraks, kom þangað í heimsókn. Uppreisnarmenn gerðu árás á skrifstofur þriggja stjórnmálahreyfinga í Bakúba. Þar særðust átta stjórnmálamenn og lögreglumaður féll. Skammt frá Kirkúk sprungu þrjár bílsprengjur og þar fórust fimm. Í Bagdad sprungu tvær sprengjur í nótt í skólum sem nota á sem kjörstaði á sunnudaginn kemur. Hersveitir fundu samtals sex sprengjur í Bagdad og gerðu óvirkar og í Najaf fundu írakskar sveitir tvær sprengjur. Það er ekki furða að íbúar í Bagdad séu hræddir, eins og viðmælendur Jóns Ársæls Þórðarsonar dagskrárgerðarmanns sem er í Írak. Jón segir að það sé sameiginlegt þeim Írökum sem hann hafi hitt að þeir séu varkárir og hræddir við að í landinu fari allt í bál og brand vegna andstöðunnar við Bandaríkjamenn. Varkárnin stafi hins vegar vafalítið af reynslunni af áratugaharðstjórn. Viðmælendur Jóns í Bandaríkjaher segja stríðsreksturinn í Írak dýran. Áætlað sé að hann kosti Bandaríkjamenn um 8 milljónir dollara á klukkustund, jafnvirði nærri hálfum milljarði íslenskra króna á hverri einustu klukkustund sólarhringsins.
Erlent Fréttir Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Sjá meira