Skriður kominn á friðarferlið 26. janúar 2005 00:01
Skriður virðist kominn á friðarferlið í Miðausturlöndum. Báðum megin borðsins virðist vilji til að vinna að friðsamlegri lausn deilna Ísraela og Palestínumanna og það að því er virðist sem fyrst. Fulltrúar palestínskra og ísraelskra stjórnvalda hittust í morgun á fundi, degi eftir að Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, aflétti banni á viðræður við Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, og stjórn hans. Sharon greindi frá sinnaskiptum sínum skömmu áður en sérstakur sendifulltrúi Bandaríkjaforseta kom til Ísraels, þar sem honum er ætlað að endurvekja friðarvegvísinn svokallaða. Shimon Peres, aðstoðarforsætisráðherra Ísraels, sagði fyrir fundinn í morgun að þar ætti einkum að ræða fyrirhugað brotthvarf Ísraelshers frá Gasaströndinni. Fundurinn var stuttur en viðræðum verður haldið áfram innan skamms og er stefnt að leiðtogafundi Abbas og Sharons hið fyrsta, að sögn Saebs Erekats, eins ráðgjafa Abbas. Palestínskar öryggissveitir munu dreifa sér um alla Gasaströndina innan sólarhrings í kjölfar þess að samkomulag tókst við ísraelska hershöfðingja. Fyrir helgi var lögreglumönnum á svæðinu fjölgað í von um að klekkja á skæruliðum og senda Ísraelsmönnum skilaboð um að nýjum herrum á sjálfsstjórnarsvæðunum væri alvara þegar friðarferlið væri annar vegar. Í morgun komu lögreglumenn sér fyrir á suðurhluta Gasastrandarinnar, skammt frá leiðinni að landnemabyggð gyðinga sem hefur verið vinsælt skotmark skæruliða. Frá því að Abbas tók við embætti forseta fyrr á þessu ári virðist sem gjörbreyting hafi orðið í samskiptum Ísraelsmanna og Palestínumanna. Í stað ávirðinga, árása og hryðjuverka virðist nú sem vilji sé til að leggja niður vopn og leita friðsamlegra lausna og það sem fyrst, hugsanlega í ljósi þess að óvíst er að harðlínumenn í báðum fylkingum séu fúsir að sætta sig við viðræður í stað aðgerða mjög lengi.
Erlent Fréttir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Sjá meira