Danska verði eina opinbera málið 26. janúar 2005 00:01
Danski þjóðarflokkurinn vill binda í lög að danska verði eina málið í opinberum gögnum, í stað þess að upplýsingar til íbúa verði á mörgum tungumálum. Samt eru tíu erlend tungumál notuð til að kynna málstað flokksins á heimsíðu hans. Opinber skjöl, veggspjöld, bæklingar, skilti, vinnureglur og samningar eiga einungis að vera á dönsku, samkvæmt tillögu Danska þjóðarflokssins, sem styður meirihlutasamstarf Venstre og Íhaldsflokksins. Einnig mega grunnskólakennarar bara tala dönsku til nemenda. Hugmyndin er að vernda málið og þrýsta á innflytjendur að læra og tala dönsku. Danski þjóðarflokkurinn er sem dæmi ósáttur við þá stefnu orkufyrirtækis í Kaupmannahöfn, að hafa látið útbúa bækling á arabísku. En hvernig stendur þá á því að heimasíðan danskfolkeparti.dk inniheldur upplýsingar um flokkinn á ensku, spænsku, þýsku, frönsku, rússnesku, ítölsku, sænsku, arabísku, tyrknesku og hebresku? Ráðherra innflytjendamála, Peter Skaarup úr Danska þjóðarflokknum, sagði í samtali við danska ríkissjónvarpið í morgun að það væri gert til þess að fólk í útlöndum gæti fylgst með og sem dæmi leituðu margir erlendir blaðamenn eftir upplýsingum um flokkinn. Hann líkti þessu við ferðaskrifstofu sem setur upplýsingar fram á mörgum tungumálum til að ná til sinna viðskiptavina. Í tilfelli innflytjenda í Danmörku væru það hins vegar svik við fólkið að tala annað en dönsku, öðruvísi lærði það ekki málið. Þingkosningar verða 8. febrúar og samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum, sem nú eru gerðar daglega, heldur stjórnin velli. Venstre, flokkur forsætisráðherrans Anders Foghs Rasmussens, tekur eitt prósent af aðalkeppinautnum Sósíaldemókrötunum, frá því í gær. Könnunin var reyndar gerð fyrir kappræður leiðtoga flokkanna í Brøndby-höllinni í Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Þar varpaði Rasmussen fram hugmynd um að 18 og 19 ára innflytjendur fengju ekki lengur bætur, aðeins boð um menntun. Mogens Lykketoft sósíaldemkrati gagnrýndi stjórnina á móti fyrir að hafa skorið niður í danska menntakerfinu. Fjölmiðlar segja fótboltatemmningu hafa verið í höllinni í gær þar sem heyra hafi mátt frammíköll á borð við bóndarass og grenjuskjóða.
Erlent Fréttir Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fleiri fréttir Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Sjá meira