Forsætisráðherra ekið í vetnisbíl 27. apríl 2005 00:01
Forsætisráðherra var ekið í fólksbíl inn í ráðstefnusal í dag. Um var að ræða vetnisknúinn bíl og markaði ökuferðin upphaf ráðstefnu þar sem kynntar eru niðurstöður vetnisstrætisvagna-verkefnisins sem staðið hefur yfir síðustu tvö ár. Vetnisvagnarnir hafa nú verið í umferð í Reykjavík frá árinu 2003 og hafa ekið 65 þúsund kílómetra. Í raun hefur fátt komið verulega á óvart. Talsverðar bilanir urðu í vögnunum í upphafi en öllu viðameiri vandamál hafa komið upp við rekstur vetnisstöðvarinnar við Vesturlandsveg þar sem framleidd hafa verið 12 tonn af vetni. Tvisvar hefur orðið að hætta framleiðslu í stöðinni vegna tæknivandamála og í annað skiptið lá framleiðslan niðri í þrjá mánuði. NýOrku-menn segja þessi vandamál leyst, líkja þeim við barnasjúkdóma, og stefna ótrauðir á framhaldið. Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir það í viðræðum við nokkur af helstu bifreiðafyrirtækjum í heiminum, þ.á m. DaimlerChrysler, um að fá til landsins bíla til að taka við strætisvögnunum. Einnig eru viðræður í gangi við Evrópusambandið um að framlengja verkefnið út árið 2006 Í tilefni af ráðstefnunni var í fyrsta skipti fluttur til landsins hefðbundinn vetnisfólksbíll. Hann naut athygli ráðherra og þingflokksformanna við Alþingishúsið í morgun en síðan var Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra ekið á honum inn í ráðstefnusalinn. Engin ástæða ku vera til að hafa áhyggjur af heilsu ráðstefnugesta í kjölfarið. Engin mengun er frá bílnum og eini útblásturinn er lítilsháttar vatnsgufa. Jón Björn neitar því alfarið að þrýst hafi verið á forsætisráðherra að fjárfesta í slíkum bíl, en hann segist þó hafa bent ráðherra á að fella þurfi niður virðisaukaskatt af vetnisknúnum bílum. Vaskurinn af fólksbílnum sem honum var ekið í í dag er t.a.m. 5,5 milljónir, eftir endurgreiðslu frá ríkinu. Nú liggur fyrir frumvarp sem gerir ráð fyrir að tveir þriðju hlutar vasksins verði endurgreiddir.
Fréttir Innlent Mest lesið Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Erlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Erlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Erlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Fleiri fréttir Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Sjá meira