Hundaræktendur takast á 17. maí 2005 00:01 "
Fráfarandi formaður tilkynnti mér á fulltrúafundi að hún ætlaði ekki að gefa kost á sér aftur, en taldi ekki þörf á því að tilkynna það neinum nema stjórninni," segir Guðmundur Helgi Guðmundsson, annar frambjóðandi til formanns Hundaræktarfélags Íslands um vinnubrögð Þórhildar Bjartmarz, fráfarandi formanns félagsins. Guðmundi finnst það ólýðræðisleg vinnubrögð af hálfu Þórhildar að tilkynna almennum félagsmönnum ekki ákvörðun sína. Mótframbjóðandi Guðmundar er Jóna Th. Viðarsdóttir, gjaldkeri félagsins. "Mér finnst þetta hafa þann brag á sér að Þórhildur hafi reynt að velja sér eftirmann með því að láta ekki almenna félagsmenn vita af ákvörðun sinni." Guðmundur Helgi hefur áður gegnt formennsku í félaginu og ákvað að bjóða sig aftur fram núna eftir að óánægðir félagsmenn gáfu sig á tal við hann. "Það hafa verið uppi óánægjuraddir með núverandi stjórn og því miður er þetta ekki eina dæmið um ólýðræðisleg vinnubrögð hennar. Ég vil sjá meira lýðræði í starfi félagsins þannig að rödd félagsmanna fái að óma. Margt í starfi félagsins er vissulega til fyrirrmyndar en það er því miður of margt sem hefur farið forgörðum." Þórhildur Bjartmarz, fráfarandi formaður kannast ekki við að hafa reynt að velja sér eftirmann. "Tímamörkin til að tilkynna framboð sitt runnu út 30. mars. Ég gaf ekki kost á mér fyrir þann tíma og það hefur legið fyrir síðan. Þetta eru reglur félagsins og það hlýtur sama yfir mig að ganga og aðra," segir Þórhildur og bætir við að sér finnist Guðmundur ekki hafa haldbær rök fyrir gagnrýni sinni. Aðalfundur Hundaræktarfélags Íslands fer fram í reiðhöll Gusts í kvöld og hefst klukkan 20. Þeir sem vilja kynna sér efni fundarins geta litið á heimasíðu félagsins hrfi.is. Ekki náðist í Jónu Th. Viðarsdóttur, mótframbjóðanda Guðmundar Helga vegna málsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Fleiri fréttir Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Sjá meira