Tryggvi dansaði Rækjudansinn 22. ágúst 2005 00:01
Þegar blaðamenn hópuðust að Tryggva Guðmundssyni eftir að sigur FH var í höfn á sunnudaginn, hafði kappinn lítið að segja og virtist í mikilli sigurvímu. Hann lét þó ekki sitt eftir liggja í fagnaðarlátunum eftir leikinn og dansaði hinn svokallaða rækjudans fyrir káta stuðningsmenn FH sem ærðust af fögnuði. Þegar Fréttablaðið hafði samband við Tryggva í gær og spurði hann út í tilþrifin, kom í ljós að hann hafði fengið heilahristing eftir að boltanum var skotið í höfuð hans í leiknum og þurfti því að fara á slysadeild í athugun. "Ég man bara eiginlega ekkert eftir þessum leik í gær og mér skilst að ég hafi bara bullað tóma steypu í viðtölum eftir leikinn," sagði Tryggvi, sem var enn ekki alveg búinn að ná sér eftir höggið. "Þetta var mjög skrítinn dagur í gær. Ég var farinn að fara verulega í taugarnar á fólki, því ég var alltaf að spyrja hvernig leikurinn hefði farið og hverjir hefðu skorað. Ég var víst með einhver skemmtiatriði á slysadeildinni líka en ég man bara ekkert eftir því," sagði Tryggvi hissa á öllu saman. Þegar hann var spurður út í dansinn sem hann tók liggjandi á vellinum fyrir áhorfendur í leikslok, útskýrði hann að þar hefði verið á ferðinni "rækjudansinn". "Þennan dans bjó ég til þegar ég var úti í Tromsö á sínum tíma og ég kenndi strákunum í FH þennan dans þegar við vorum í æfingabúðunum úti í Portúgal í vor. Ég sagði þeim að ef við yrðum Íslandsmeistarar, skyldi ég taka þennan dans og ég varð auðvitað að standa við það," sagði Tryggvi, sem er áreiðanlega einn af fáum mönnum sem hafa skorað mörk í Landsbankadeildinni án þess að muna eftir því.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Fótbolti Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Fótbolti Herinn kallaður á æfingu á HM Fótbolti Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Fótbolti Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Íslenski boltinn María Eva hetja Þróttar þegar þær fóru í undanúrslitin Íslenski boltinn Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Fleiri fréttir Dagskráin: Kemst Gunnlaugur Árni í gegnum niðurskurðinn á US Open? Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Herinn kallaður á æfingu á HM Sjáðu pútt Gunnlaugs Árna á fjórðu holu Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Svisslendingar skoruðu fjögur mörk í lokin Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton HM-framherji fær ekki að koma til Kanada Mollee: „Ég hef fulla trú á liðinu“ Þróttur og Fram fengu heimaleik í undanúrslitunum María Eva hetja Þróttar þegar þær fóru í undanúrslitin Beint: Gunnlaugur Árni á US Open Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Rástími Gunnlaugs Árna nú settur klukkan 20:20 Neymar missir af öðrum HM-leik hjá Brössum Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Ljósmyndarar eyðilögðu þjóðsönginn fyrir Tuchel Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Spila æfingarleik á meðan HM stendur Erfiðar aðstæður gætu hjálpað Gunnlaugi Gleði og gott veður á TM mótinu í Eyjum Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós „Að ganga í gegnum þetta gerði hann miklu sterkari“ Sjá meira