Atvinnurekendur hafna frumvarpi 28. apríl 2005 00:01
Frumvarp menntamálaráðherra um Ríkisútvarpið brýtur gegn samkeppnislögum og reglum Evrópska efnahagssvæðisins um ríkisstyrki. Þetta kemur fram í áliti Samtaka atvinnulífsins sem sent var menntamálanefnd Alþingis í gær. "Við mælum gegn því að frumvarpið verði samþykkt í þeirri mynd sem það er nú. Í því er gert ráð fyrir áframhaldandi ríkisstyrkjum til dagskrárgerðar og þjónustu á markaði sem er í engu frábreytt því sem einkafyrirtæki eru að bjóða," segir Ari Edwald framkvæmdastjóri SA. "Við drögum í efa að það fái staðist reglur EES um ríkisstyrki. Sérstök rök verða að vera fyrir því að veita ríkisstyrki fyrir slíka starfsemi. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að halda áfram að reka ríkisfyritæki, sem nú er rekið með tapi, með styrkjum frá ríkinu sem hlýtur að eyðileggja skilyrði fyrir heilbrigðri samkeppni á þessu sviði," segir Ari. Í umsögninni segir að útvarpsrekstur sé frjáls atvinnustarfsemi og því þurfi lög um hann að vera laus við mismunun sem á sér ekki eðlilegar forsendur. Ekki sé gætt nægjanlega að þessum þætti í frumvarpinu og verði einkaaðilum í útvarpsrekstri ekki tryggt eðlilegt jafnræði, segir í umsögninni. Þá segir að almannaþjónustuhlutverk RÚV sé ekki nægilega vel skilgreint og engu betur en nú er gert í lögum. Einnig sé flestum þeirra atriða sem skilgreind eru sem útvarpsþjónusta í almannaþágu nú einnig sinnt af einkareknum útvarpsstöðvum. "Telja samtökin að með samþykkt frumvarpsins yrði fest í sessi óhófleg mismunun í skilyrðum til útvarpsrekstrar sem engin sátt gæti orðið um og teljast verði andstæð markmiði samkeppnislaga," segir í umsögninni. Ekki náðist í Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra í gær og Gunnar I. Birgisson, formaður menntamálanefndar, vildi ekki tjá sig um umsögnina að svo stöddu.
Fréttir Innlent Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Fleiri fréttir Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Sjá meira