Vargdýr ógna lífríki Mývatns 17. ágúst 2005 00:01 "
Við höfum skorið niður fjármagn til málaflokksins úr 4,5 milljónum í 2,5," segir Sigbjörn Gunnarsson sveitarstjóri Skútustaðahrepps um minka- og tófuveiðar. Það sem af er þessu ári hafa veiðar haldið áfram með hefðbundnum hætti en fjárveiting ársins er að verða uppurin um þessar mundir og svo kann að fara að ekkert verði veitt það sem eftir er af árinu. Sveitarstjórnin ræðir málið síðar í dag, en óvíst er hver lendingin verður. "Við erum ekkert sérstaklega sáttir með að þurfa að hætta." Sigbjörn hefur áhyggjur af lífríkinu við vatnið en það hefur verið tiltölulega minkafrítt. "Hvergi í heiminum verpa jafnmargar andartegundir." Sigbjörn telur að veiðarnar ættu að vera á hendi ríkisins en ekki sveitarfélaganna. Skútustaðahreppur þekur sex prósent af flatarmáli landsins en íbúarnir eru 450, eða 0,15 prósent landsmanna. "Það er rétt að Mývatn hefur lengi verið nokkuð minkafrítt," segir Árni Einarsson, forstöðumaður Náttúrurannsóknarstöðvarinnar við Mývatn. Hann segir minka aðeins hafa veiðst á jaðri svæðisins. "Það heyrir til undantekninga ef greni finnst nærri vatninu." Hann telur forgangsmál að minkurinn nái ekki fótfestu á ný en í kringum 1980 fóru veiðar að skila árangri. "Þegar hann kom fyrst breyttist varpið mikið. Frægt andavarp í Slútnesi hvarf til að mynda alveg." Að sögn Árna er flöskuhálsinn í afkomu minksins um háveturinn. "Það væri mjög slæmt ef minkur yrði ekki veiddur í nóvember og desember." Árni tekur undir að Mývetningar eigi ekki að bera kostnaðinn af veiðunum. "Mývatn er náttúruverndarsvæði með sérstökum lögum og einstakt í heiminum." "Ef ég fæ ekki að veiða hér í vetur verða minkagreni um allt svæðið strax næsta vor," segir Ingi Þór Yngvason, sem hefur sleitulaust í þrjá áratugi séð um veiðarnar með góðum árangri. Hann hefur þó meiri áhyggjur af fjölgun tófunnar. "Ég hef minni áhyggjur af minknum þar sem ég treysti mér til þess að vinna það allt til baka. Það er auðvelt að veiða hann í gildrur allan ársins hring. "Ég er ekki jafn viss með refinn, við höfum ekki sama tak á honum."
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Fleiri fréttir „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Sjá meira