Helgi Jónas verður með 1. júní 2005 00:01
Körfuknattleiksdeild Grindvíkinga hefur ekki setið auðum höndum í sumarfríinu og nú er að verða komin mynd á hóp liðsins fyrir næsta vetur. Friðrik Ingi Rúnarsson mun stýra liðinu á næstu leiktíð, þeir fengu Pál Kristinsson til liðs við sig frá Njarðvík og hafa nú samið við skyttuna Guðlaug Eyjólfsson um að snúa aftur til liðsins eftir hálfs árs fjarveru. Þá eru þeir í viðræðum við Berg Hinriksson, sem hefur verið í námi erlendis. Þær gleðifréttir bárust svo nýverið að Helgi Jónas Guðfinnsson stefni á að geta verið með næsta vetur. Helgi hefur átt við þrálát meiðsli að stríða í baki undanfarin tvö ár og það hefur háð Grindvíkingum nokkuð mikið í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. „Ég stefni á að vera með allan tímann næsta vetur, ef heilsan leyfir," sagði Helgi Jónas í samtali við Fréttablaðið í gær, en hann er búinn að vera á kafi í vinnu undanfarið við að opna líkamsræktarstöð í Grindavík. „Ég er að fara til sérfræðings fljótlega þar sem farið verður yfir hvað er hægt að gera í sambandi við bakið á mér og ég ætla mér að vera með næsta vetur," sagði Helgi Jónas.
Körfubolti Mest lesið Grindavík - Tindastóll 89-94| Tindastóll heldur lífi í einvíginu Körfubolti Egyptaland - Ísland 27-30 | Tveggja sigra ferð til Kaíró Handbolti Villa í Meistaradeild Evrópu en Liverpool þarf að bíða Enski boltinn „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Fótbolti „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Handbolti „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ Handbolti Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Körfubolti Sýna puttann til stuðnings Kane Körfubolti Biðst afsökunar á „óafsakanlegri hegðun“ Golf Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kallar eftir naglasnyrtingu á Króknum „Halda að við séum í einhverju stríði en hann er minn maður“ „Ég vildi að hann væri skoskur“ Grindavík - Tindastóll 89-94| Tindastóll heldur lífi í einvíginu Villa í Meistaradeild Evrópu en Liverpool þarf að bíða Víkingar áfram eftir framlengda spennu Bikarævintýri Reyknesinga og Garðbæinga Alfreð og hans menn fengu ekki að hefna sín neitt Sýna puttann til stuðnings Kane Diljá með fimm mörk á tveimur vikum Egyptaland - Ísland 27-30 | Tveggja sigra ferð til Kaíró Kolbeinn snýr aftur til Köben í tuttugasta bardagann Biðst afsökunar á „óafsakanlegri hegðun“ Segir NBA Europe vera frábært tækifæri fyrir körfubolta Dagur snýr heim úr atvinnumennsku Besta sætið: Þreföld öryggisgæsla í Grindavík Kalla eftir brottrekstri Southampton vegna njósnanna Venus verður sú elsta til að spila á Opna franska FIFA og Sádar í eina sæng „Stríðshetjur“ Íran lagðar af stað á HM „Við erum alltaf að gefa í“ Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ FIFA stefni öryggi leikmanna í hættu á HM Búist við því að Carrick skrifi undir tveggja ára samning um helgina „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Heskey yngri tryggði City titil gegn United „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Mitoma missir af HM og leiknum gegn Íslandi „Fyrir þjálfaranum er ég fjórði besti framherjinn“ Sjá meira