Sport

Romario aftur í landslið Brasilíu

Gamla kempan Romario var valin í brasilíska landsliðið í knattspyrnu eftir fjögurra ára fjarveru. Romario er 39 ára að aldri og leikur með Vaso da Gama í heimalandi sínu. Hann mun taka þátt í strandboltamóti með landsliðinu sem fram fer í Rio de Janeiro. Romario lék síðast með Brasilíumönnum í undankeppni HM gegn Úrúgvæ árið 2001. "Hann er einstakur leikmaður sem velgir andstæðingunum vel undir uggum," sagði Jorge Ferreira Alves, þjálfari Brasilíu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×