Barna sé gætt á hættulegum stöðum 26. apríl 2005 00:01
Herdís Storgaard, verkefnisstjóri barnaslysavarna hjá Lýðheilsustöð, brýnir fyrir foreldrum að líta aldrei af ungum börnum sínum á stöðum þar sem hættur eru augljósar. Hún segir það skelfilegt að slys hafi orðið að undanförnu þar sem legið hefur við drukknun lítilla barna. Tvö hræðileg slys hafa orðið síðustu daga, þar sem þrjú börn hafa næstum því drukknað. Fyrra slysið varð í Kolgrafarfirði þar sem tvö þriggja ára börn féllu í sjóinn og síðara slysið varð í Þingvallavatni þar sem tveggja ára barn var hætt komið. Herdís Storgaard, verkefnisstjóri barnaslysavarna hjá Lýðheilsustöð, telur að foreldrar geri sér ekki nægilega grein fyrir þeim hættum sem séu til staðar. Hún bendir á að á síðustu 20 árum hafi engin dæmi borist heilbrigðisyfirvöldum um að börn hafi drukknað eða næstum því drukknað í vötnum eða í sjó. Hún segir að það sem vekji skeflingu sé það að fólk gangi um á hættulegum stöðum með lítil börn án þess að börnin séu leidd eða að fylgst sé með þeim allan tímann. Börn á þessum aldri séu miklir óvitar og skynji alls ekki hættu, en eins og hinir fullorðnu viti hafi vatnið mikið aðdráttarafl. Herdís telur ástæðu til að brýna það fyrir foreldrum, ekki síst þar sem sumarið er nýhafið, að fara varlega þegar heitir pottar og laugar af ýmsu tagi eru annars vegar. Hún segir það nokkuð algengt nú að komið sé upp tjörnum og gosbrunnum í görðum og hún sé ekki viss um það að allir átti sig á því að börn undir fjögurra ára aldri getidrukknað í tveimur til fimm sentímetrum af vatni. Fólk þurfi að huga vel að þessu og eins þegar fólk fari í heimsókn þangað sem gosbrunnar og tjarnir eru.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Fleiri fréttir Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Sjá meira