Börkur situr beggja vegna borðsins 26. ágúst 2005 00:01
Börkur Edvarsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, sem sakaður er um að hafa rætt ólöglega við Atla Jóhannsson leikmann ÍBV fyrr í vikunni, situr í nefnd innan KSÍ sem sér um að endurskoða reglugerðir um félagaskipti og samninga. Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, sem knattspyrnudeild ÍBV sakar um að hafa rætt ólöglega við Atla Jóhannsson fyrr í vikunni um möguleg félagaskipti hans til Vals, er einn af fimm meðlimum í milliþinganefnd KSÍ um félagsskipti og samninga. Að sögn Geirs Þorsteinssonar, framkvæmdastjóra KSÍ, hefur þessi nefnd það hlutverk að endurskoða reglugerðir um félagaskipti eftir hvert keppnistímabil og leggur til breytingar á þeim ef hún telur þess þörf, en Börkur var skipaður í þessa nefnd fyrir keppnistímabilið í ár. Geir segir að nauðsynlegt sé að þeir sem taki að sér störf í nefndinni kynni sér allar slíkar reglugerðir rækilega, en af vinnubrögðum Barkar í máli Atla, sem er samningsbundinn ÍBV út næsta sumar en Börkur ræddi samt sem áður við án vitundar knattspyrnudeildar ÍBV, má efast um hvort Berki sé sætt í þeirri nefnd. Í reglugerð KSÍ um samninga og stöðu leikmanna og félaga segir orðrétt í lið D2: "Félag, sem gerir sambandssamning, skuldbindur sig til að hlíta reglum KSÍ um félagaskipti leikmanna. Jafnframt skuldbindur félagið sig til þess að hafa ekki samband við samningsbundinn leikmann nema að fengnu leyfi frá viðkomandi félagi. Þó er heimilt að ræða við samningsbundinn leikmann eftir 15. október án leyfis viðkomandi félags, ef samningur hans rennur út eigi síðar en um næstu áramót." Börkur sagði við Fréttablaðið í fyrradag að ástæðan fyrir því að hann hefði haft samband við Atla væri vegna þess að hann hefði talið að samningur hans rynni út á þessu ári. Annað hefði hins vegar komið í ljós og í kjölfarið hefði hann beðið knattspyrnudeild ÍBV afsökunar, sem engu að síður hefur lagt inn kæru til KSÍ vegna málsins. Í áðurnefndri reglugerð segir hins vegar að það hefði engu skipt þótt samningur Atla hefði runnið út á þessu ári - Börkur hafði engan rétt til að ræða við hann fyrr en eftir 15. október. Aðspurður um hvort hann, sem fulltrúi nefndar sem sér um þessi mál innan KSÍ, hefði ekki átt að kannast við þetta ákvæði, kvaðst Börkur ekki vilja tjá sig meira um þetta mál. "Þetta er á milli okkar og Eyjamanna," sagði hann. Að sögn Geirs er kæra ÍBV komin í farveg innan KSÍ og segir hann að gagnaöflun og rannsókn málsins gæti tekið nokkrar vikur. Um setu Barkar í félagaskiptanefndinni sagði Geir að ef fótur væri fyrir ásökunum Eyjamanna þá væri hún vissulega óheppileg.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Styttist í að Orri Steinn verði ekki lengur stærsta sala FCK Fótbolti Hrósuðu Túfa í hástert: „Á einhvern hátt heldur maður með honum“ Fótbolti Borgarstjórinn forðast að ræða hótanir Trumps Sport „Fjölmennasti leikur sem Breiðablik hefur spilað“ Fótbolti Þurfa að losa leikmenn til að skrá Rashford Fótbolti Búinn að eyða yfir tuttugu milljörðum en segist vanta meira Fótbolti „Við erum ekki á góðum stað“ Íslenski boltinn Sögunni endalausu um Gyökeres loksins að ljúka Enski boltinn „Ég líki þessu svolítið við Blikana“ Fótbolti Hálffimmtug Venus snéri aftur með sigri Sport Fleiri fréttir Eigandi Cowboys gerir stjörnurnar sínar brjálaðar Mætti með bikarinn á frumsýningu Happy Gilmore Víðir fór holu í höggi Rakarastofa og sjónvarp fyrir alla í flottasta búningsklefa heims Sögunni endalausu um Gyökeres loksins að ljúka Borgarstjórinn forðast að ræða hótanir Trumps Fyrrum leikmaður Liverpool og Chelsea látinn „Fjölmennasti leikur sem Breiðablik hefur spilað“ Frá Inter til Serbíu og gæti mætt Blikum Ekki hissa á því að Horner hafi verið rekinn Hrósuðu Túfa í hástert: „Á einhvern hátt heldur maður með honum“ Búinn að eyða yfir tuttugu milljörðum en segist vanta meira „Við erum ekki á góðum stað“ Þurfa að losa leikmenn til að skrá Rashford „Ég líki þessu svolítið við Blikana“ Hálffimmtug Venus snéri aftur með sigri Styttist í að Orri Steinn verði ekki lengur stærsta sala FCK Dagskráin í dag: Breiðablik í Póllandi Daðraði við Dallas áður en hann skrifaði undir hjá Lakers á nýjan leik „Líður eins og ég sé hraðari, sterkari og í betra standi en áður“ Enn leikmaður KR en nú lánaður til Lyngby Amorim og Guardiola vilja fyrrum lærisvein þess fyrrnefnda Íþróttamaður HK til liðs við ÍA Mbeumo staðfestur hjá félagi drauma sinna Arnór Ingvi skoraði og lagði upp áður en hann fór meiddur af velli Frá Skagafirði á Akranes Snýr heim í toppliðið sem dreymir um Bestu Paul ætlar að klára ferilinn hjá Clippers Treyja Shilton og medalía Pelé til sölu Suður-amerískur glæpahringur braust inn til Mahomes og Burrow Sjá meira