Reynt að semja um skuldalækkun 5. febrúar 2005 00:01
Mikilvæg tímamót eða enn ein marklaus viljayfirlýsingin? Ekki eru allir á einu máli um niðurstöðu fjármálaráðherra ríkustu þjóða heims sem reyndu í dag, með litlum árangri, að komast að samkomulagi um það hvernig bjarga ætti Afríku úr fátæktargildru og lækka skuldir þriðja heims ríkja. Það höfðu margir bundir miklar vonir við þennan fund G7-ríkjanna, meðal annars Gordon Brown, fjármálaráðherra Breta. Hann reyndi hvað hann gat að afla stuðnings við tillögur sínar sem annars vegar snúast um að koma á fót nokkurs konar Marshall-áætlun fyrir Afríku og tvöfalda þá fjáhæð sem heimsálfan fær í aðstoð og hins vegar um að afskrifa alveg opinberar skuldir þeirra þriðja heims ríkja sem eru fátækust. Brown sem hafði m.a. fengið Nelson Mandela til að styðja við tillögur sínar mistókst hins vegar ætlunarverk sitt. Bandaríkjastjórn neitar að taka þátt í sérstöku átaki fyrir Afríku og segist vilja fara sínar eigin leiðir. Þær leiðir felast aðallega í því að binda fjárhagsaðstoðina við umbótatillögur sem eru Bandaríkjamönnum að skapi. Ekki tókst Brown betur til með tillögu sinni um skuldaniðurfellinguna þótt hann hafi á blaðamannafundi síðdegis sýnt niðurstöðuna í afar jákvæðu ljósi. Hann sagði að fundarins yrði minnst fyrir það að helstu iðnríki heims hefðu viljað afskrifa skuldir fátækustu ríkja heims. Þar myndu ríku þjóðirnar hlusta á raddir hinna fátæku. Aldrei áður hefði verið tilkynnt á fundi helstu iðnríkja heims að þau hygðust afskrifa skuldir fátækari þjóðanna. Brown sagði enn fremur að hann teldi að mikill árangur hefði náðst í fjölmörgum málum sem vörðuðu fólk og það sýndi að ekkert óréttlæti varaði að eilífu. Fréttaskýrendur benda á að þetta sé aðeins lauslega orðuð viljayfirlýsing sem feli engar skuldbindingar í sér og leiði ekki til þess að skuldir fátækustu ríkjanna verði afskrifaðar. Um eitt eru menn almennt sammála. Það ríður á að ná samstöðu um niðurfellingu skulda því það er óverjandi að sum fátæk ríki eyði meiru í að borga af skuldum sínum en til að mennta þjóðina. Hitt er jafn víst: Menn hafa rætt þetta fram og til baka í meira en áratug og þótt ýmsir áfangasigrar hafi unnist virðist enn langt í land með að vestrænar þjóðir nái samstöðu um það að leysa málið í eitt skipti fyrir öll.
Erlent Fréttir Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Innlent Alelda bíll á Emstruleið Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Fleiri fréttir Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Sjá meira