Neitar að ráðast gegn fátækt 5. febrúar 2005 00:01
Bandaríkjastjórn neitar að taka þátt í því að ráða að niðurlögum fátæktar og lækka skuldir þriðja heims ríkja samkvæmt breskri tillögu. Bandaríkjamenn segjast vilja fara sínar eigin leiðir í þessum efnum. Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, kynnti tillögur sínar í þessum efnum á fundi fjármálaráðherra sjö helstu iðnríkja heims sem hófst í gær. Bretar fara nú með leiðtogahlutverk í þessum hópi og höfðu heitið því að koma skriði á fátæktarmálin. Ein meginhugmynd Breta er að kom á fót nokkurs konar Marshall-áætlun fyrir fátækustu lönd heims, einbeita sér að Afríku og tvöfalda þá upphæð sem fer í að aðstoða ríki álfunnar. Nelson Mandela, fyrrverandi forseti Suður-Afríku, hefur tekið þessar tillögur upp á sína arma og hvatti fjármálaráðherrana í gær til að berjast með sama krafti gegn fátækt og barist var gegn aðskilnaðarstefnunni á sínum tíma. Allt hefur komið fyrir ekki og það er svipað hér og í mörgum öðrum slíkum alþjóðlegum samstarfsverkefnum, það strandar á Bandaríkjastjórn. John Taylor, aðstoðarfjármálaráðherra Bandaríkjanna, segir hreint út að Bandaríkin hafi ekki áhuga á að taka þátt í þessari samvinnu, þessi áætlun henti þeim ekki, þeir noti sínar eigin leiðir. Þessi afstaða Bandaríkjanna olli miklum deilum á fundinum í gær og varð tilefni harkalegra orðaskipta. „Bandaríkjamenn eru á annarri bylgjulengd,“ sagði þýski fjármálaráðherrann eftir fundinn. Ekki gengur Bretum betur að afla stuðnings við hugmyndir sínar um að afskrifa alveg opinberar skuldir þeirra þriðja heims ríkja sem eru fátækust og nota til þess gullforða Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Bandaríkjastjórn segist fylgjandi því að minnka skuldabyrði þriðja heims ríkja en ekki á þann hátt sem Bretar leggja til. Skuldamál þriðja heimsins hafa verið á borði Vesturlanda í lengri tíma án þess að lausn finnist og á meðan Bandaríkjastjórn dregur lappirnar er ólíklegt að hún finnist. Vonir eru þó enn bundnar við að hægt verði að komast að einhverri niðurstöðu fyrir næsta fund iðnríkjanna í júlí.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Sjá meira