Owen ekki ósáttur hjá Real 15. febrúar 2005 00:01
Enski framherjinn Michael Owen þvertekur fyrir það að hann vilji segja skilið við spænska stórliðið Real Madrid. Sögur herma að kappinn sé mjög ósáttur við spilatímann sinn hjá Madrid. "Þó svo að ég vilji spila fleiri mínútur, þá þýðir það ekki að ég vilji fara frá Madrid. Ég er alveg sáttur við að vera varamaður," sagði Owen. Vanderlei Luxemburgo, knattspyrnustjóri Madrid-liðsins, skildi afstöðu Owens vel. "Ronaldo og Raul munu ekki hefja hvern einasta leik þannig að Owen má búast við að leika meira á næstunni," sagði Luxemburgo. Samkvæmt öruggum heimildum mun Gary Bettmann, forseti íshokkídeildarinnar NHL, efna til blaðamannafundar í kvöld þar sem hann mun formlega lýsa því yfir að deildinni verði aflýst í vetur. Félög leikmanna og liðseigenda hafa reynt að ná sáttum án árangurs síðan að þeir síðarnefndu ákváðu að efna til verkfalls 18. september síðastliðinn. Þetta verður í annað sinn síðan 1893 sem úrslitakeppnin um Stanley Cup bikarinn fellur niður en það gerðist einnig árið 1919 vegna farsóttar. Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, vakti mikla athygli þegar hann tefldi fram 16 manna liði sem eingöngu var skipað erlendum leikmönnum þegar liðið mætti Crystal Palace. Þetta er í fyrsta sinn í sögu ensku knattspyrnunnar þar sem engan Englending er að finna í leikmannahópnum. "Ég kíki ekki á vegabréf manna heldur horfi ég frekar til hæfileika og hugarfars viðkomandi," sagði Wenger. "Svo var Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, á leiknum. Á hvern ætli hann hafi verið að horfa," sagði Wenger á léttu nótunum. Steve Nash skoraði 19 stig og gaf 18 stoðsendingar þegar lið hans, Phoenix Suns, lagði Utah Jazz að velli, 136-128, í NBA-körfuboltanum í fyrrinótt. Til marks um hið háa stigaskor leiksins má nefna að Jazz skoraði 43 stig gegn 38 stigum Suns í lokafjórðungnum. Þetta var hæsta stigaskor leiks í vetur í NBA. Amare Stoudamire var stigahæstur á vellinum með 42 stig og 12 fráköst en tveir lykilmenn Jazz, Andrei Kirilenko og Carlos Boozer, meiddust undir lok fyrri hálfleiks. Pedro de la Rosa, fyrrum ökumaður Jaguar og Arrows, tilkynnti að hann myndi keyra þriðja bíl McLarenliðsins í fyrstu þremur mótum Formúlu 1 kappakstursins en sex neðstu lið síðasta árs mega notast við þrjá bíla í fyrstu mótunum. Hinn 33 ára gamli Rosa sagði einnig að þetta væri eitt af síðustu tækifærum hans í Formúlunni. "Ég mun notast við allan þann styrk sem ég get tínt til og svo verða þeir að ákveða hvort ég verði fyrir valinu eða Wurz," sagði Rosa en hinn austurríski Alexander Wurz mun einnig reyna að vinna sér inn sæti hjá liðinu.
Íþróttir Mest lesið Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Fótbolti Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Fótbolti Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Fótbolti Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Herinn kallaður á æfingu á HM Fótbolti Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Fótbolti Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Íslenski boltinn Tár hetjunnar höfðu áhrif og mamma hans fær að koma á HM Fótbolti Fleiri fréttir Mexíkóar fyrstir í 32-liða úrslit eftir skelfileg mistök Tár hetjunnar höfðu áhrif og mamma hans fær að koma á HM Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Dagskráin: Kemst Gunnlaugur Árni í gegnum niðurskurðinn á US Open? Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Herinn kallaður á æfingu á HM Sjáðu pútt Gunnlaugs Árna á fjórðu holu Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Svisslendingar skoruðu fjögur mörk í lokin Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton HM-framherji fær ekki að koma til Kanada Mollee: „Ég hef fulla trú á liðinu“ Þróttur og Fram fengu heimaleik í undanúrslitunum María Eva hetja Þróttar þegar þær fóru í undanúrslitin Beint: Gunnlaugur Árni á US Open Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Rástími Gunnlaugs Árna nú settur klukkan 20:20 Neymar missir af öðrum HM-leik hjá Brössum Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Ljósmyndarar eyðilögðu þjóðsönginn fyrir Tuchel Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Spila æfingarleik á meðan HM stendur Erfiðar aðstæður gætu hjálpað Gunnlaugi Sjá meira