Innlent

Flestir ánægðir með innflytjendur

Flestir Íslendingar eru tiltölulega ánægðir með innflytjendur hérlendis og áhrif þeirra á efnahagslífið, samkvæmt nýrri könnun Rauða kross Íslands. Þó vildi rúmur fimmtungur síður að múslímar byggju í nánd við þá. Gallup gerði könnun á viðhorfi Íslendinga til nokkurra minnihlutahópa fyrir Rauða kross Íslands í lok júlí og byrjun ágúst. Aðeins rúm fimm prósent svarenda töldu lífsgæði sín hafa versnað við fjölgun innflytjenda á Íslandi en nítján prósent að þau hefðu batnað. Meirihluti taldi þá einnig hafa haft góð áhrif á íslenskt efnahagslíf. Það var helst í nágrannaspurningunni sem neikvæðni í garð minnihlutahópa kom í ljós. Fimm og hálft prósent til sex og hálft prósent svarenda sagðist verða ósáttur ef samkynhneigt fólk, innflytjendur eða fólk sem væri búddatrúar byggi í næstu íbúð eða húsi við það. Hlutfallið stökk hins vegar upp á við þegar spurt var um geðfatlaða - tæp sautján prósent vildu ekki eiga geðfatlaðan einstakling að nágranna og enn fleiri, eða rúm tuttugu og tvö prósent vildu ekki hafa múslima í næsta nágrenni við heimili sitt. Hver er skýringin á þessu? Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins, segir að gagnvart múslimum þá er umræðan um þá þannig að fólki stendur ógn af þeim þar sem múslímar eru tengdir við hryðjuverk. Sigrún segir það vera ákveðin vonbrigði að geðfatlaðir búi við þessa fordóma og hún sagði að þar hefði einnig verið lítill munur á milli menntunar, búsetu, aldur, kyns og tekna fólks. Í könnunum á viðhorfi nemenda í níunda og tíunda bekk hefur hlutfall þeirra sem líta innflytjendur neikvæðum augum farið hækkandi undanfarin ár. Rauði kross Íslands ætlar að hleypa af stokkunum átaki í þessum málum undir yfirskriftinni Byggjum betra samfélag, og verður það gert með formlegum hætti á Menningarnótt, með fjöldagöngu niður Hverfisgötuna, sem endar á rokktónleikum á Hafnarbakkanum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×