Leyfislausir leigubílstjórar 19. ágúst 2005 00:01 "
Það eru nokkur mál í skoðun hjá okkur í dag og slík mál koma nokkuð reglulega upp," segir Sigurður Hauksson hjá eftirlitsdeild Vegagerðarinnar. Er Sigurður þar að tala um mál er varða misnotkun á atvinnuleyfum leigubílstjóra en eitthvað virðist um að óprúttnir fari ekki að lögum og reglum hvað þau varðar. Viðurlög við misnotkun á slíkum leyfum er aðvörun en ekki er gengið ýkja hart fram fyrr en sannað þykir að viðkomandi leyfishafi brjóti lögin ítrekað. Hefur það heft rannsókn slíkra mála að andmælaréttur leyfishafa er afar ríkur og hvert mál getur tekið langan tíma. Misnotkunin felst aðallega í að leyfishafar, sem halda leyfum sínum til 71 árs aldurs, framleigi þau og stundi jafnvel allt aðra vinnu á meðan en að keyra leigubíl. Slíkt er ekki brot svo lengi sem leyfishafar sjálfir skili 40 tíma vinnuframlagi í viku hverri en eftirlit með slíku er afar erfitt og allt að því vonlaust. Sigurður segir að misjafnir menn finnist í öllum greinum en tekur fram að 95 prósent leigubílstjóra séu löghlýðnir og almennt séu engin vandamál af þeirra hálfu. "Svo eru aðrir sem reyna að fara á sveig við lög og reglur en enginn hefur þó misst leyfið sitt vegna brota á þeim þremur árum sem við höfum séð um eftirlit með þessu." Lög kveða einnig á um að allir leigubílstjórar skuli vera með atvinnuleyfi sín í bílum sínum en Fréttablaðið hefur sannreynt að því er ekki til að heilsa í öllum tilvikum. Víða erlendis mega bílstjórar ekki aka leigubílum nema akstursleyfi þeirra sé á áberandi stað í bílum þeirra þar sem viðskiptavinir geta séð mynd, nafn og leyfisnúmer viðkomandi. Er það sjálfssagt öryggisatriði fyrir farþega enda ljóst að tryggingar ná ekki til þeirra sem aka leigubíl undir fölsku flaggi. Vegagerðin hefur vitneskju um að í höfuðborginni séu notaðir leigubílar sem tilheyra engri leigubílastöð og er því allur varinn góður.
Fréttir Innlent Mest lesið Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Erlent Kári um njósnatalið: „Óvarlegt af mér og býsna óheiðarlegt“ Innlent „Held að sjávarútvegurinn hafi misst samtalið við þjóðina“ Innlent Vinnur á fjórum stöðum en eigin íbúð fjarlægur draumur Innlent „Hvað næst? Sparka í okkur? Berja okkur? Stinga einhverju í okkur?“ Innlent Handtekinn í Laugardal grunaður um mansal Innlent Slóðinn að gosinu einungis fyrir viðbragðsaðila og jeppa Icelandia Innlent Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Erlent Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Erlent Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Innlent Fleiri fréttir Kári um njósnatalið: „Óvarlegt af mér og býsna óheiðarlegt“ Handtekinn í Laugardal grunaður um mansal „Held að sjávarútvegurinn hafi misst samtalið við þjóðina“ 250 þúsund gestir skemmtiferðaskipa á Akureyri í sumar „Hvað næst? Sparka í okkur? Berja okkur? Stinga einhverju í okkur?“ Vinnur á fjórum stöðum en eigin íbúð fjarlægur draumur Slóðinn að gosinu einungis fyrir viðbragðsaðila og jeppa Icelandia Útgerðin misst tengsl við almenning og ómögulegt að fá greiðslumat Tengist ekki skuggaflota Rússlands Játaði gróft ofbeldi gegn eigin foreldrum og að hafa ekið á mann Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Þyrlan sótti slasaðan einstakling í Skaftafell Gæsluvarðhald yfir sveðjumanni í Úlfarsárdal framlengt þriðja sinni Sjaldséður beinhákarl í Faxaflóa Sérsveitin handtók mann í Garðabæ „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Einn handtekinn vegna frelsissviptingar í Árbæ Meirihluti vill banna sjókvíaeldi Almenn andstaða við sjókvíaeldi og neikvætt viðhorf til þéttingar byggðar „Þetta er grátt mál þó ég hafi ekki gert neitt rangt“ Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Sökk í mýri við Stokkseyri Gosmóðan fýkur á brott Meirihluti landsmanna ánægður með söluna á Íslandsbanka Karl Héðinn stígur til hliðar 56 prósent landsmanna neikvæð gegn þéttingu byggðar Umferð beint um Þrengslin í dag Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Sjá meira