Friðargæslumenn tryggðir 26. maí 2005 00:01
Tryggingastofnun ríkisins sem áður hafði synjað friðargæsluliðunum þremur sem slösuðust í sprengjuárás í Kabúl síðasta haust um bætur hefur nú breytt afstöðu sinni og samþykkir nú að um bótaskylt slys hafi verið að ræða. Að sögn Karls Steinars Guðnasonar forstjóra Tryggingastofnunar er þessi ákvörðun byggð á nýjum upplýsingum sem stofnuninni bárust frá utanríkisráðuneytinu. Davíð Oddsson utanríkisráðherra gagnrýndi ákvörðun Tryggingastofnunar á Alþingi 29. apríl síðast liðinn þegar ljóst var að stofnunin ætlaði að synja friðargæsluliðunum um bætur og vonaðist hann þá til að áfrýjuninni yrði tekið af meiri sanngirni. Sagði hann meðal annars að friðargæslumenn væru aldrei í fríi. Aðspurður hvort sinnaskiptin séu tilkomin vegna gagnrýni utanríkisráðherra segir Karl Steinar að fyrri ákvörðunin hefði verið byggð á upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu og það sem varð til þess að ákvörðuninni var breytt voru nýrri og betri upplýsingar frá því sama ráðuneyti. Ennfremur segir hann að Tryggingastofnun leggi til að 3. kafla laga um almannatryggingar verði breytt þannig að tryggt verði í framtíðinni að friðargæsluliðar séu tryggðir allan sólarhringinn. "Það hefur mikla þýðingu fyrir okkur að fá það viðurkennt að við vorum að vinna en ekki bara að túristast þarna líkt og halda mætti af fyrri ákvörðun," segir Haukur Grönli einn af friðargæsluliðunum þremur sem slasaðist. "Ég átti alltaf von á þessu," segir Steinar Örn Magnússon enn hann slasaðist töluvert í sprengingunni. Hann sagði að það hefði aðeins verið misskilningur á milli stofnanna sem olli því að þeim var fyrst synjað um bætur. Steinar gengur ekki enn heill til skógar og er hann ennþá með átta sprengjubrot í sér. "Málmleitartækin flauta alltaf á mig þegar ég fer í gegnum vopnaleit á flugvöllum," segir hann kankvís. Hann á enn eftir að gangast undir rannsóknir vegna áverkanna sem hann hlaut í sprengingunni.
Fréttir Innlent Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira