Sport

Sauber ekki búið að semja við BMW

Forráðamenn BMW hafa vísað því á bug að Sauber-liðið í Formúlu 1 hafi gert samning um að nota vélar frá sér í keppni á næsta tímabili.  Það var Frank Williams lýsti því yfir á dögunum að Sauber myndi aka með BMW vélar á tímabilinu, en Williams-liðið hefur notast við þær undanfarið eins og flestir vita. Nú hefur þessum fullyrðingum verið vísað á bug af BMW og þeir segja að þó svo að samningaviðræður séu í gangi, sé ekkert ákveðið í því sambandi ennþá.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×