Sport

Reynt að bjarga NHL-tímabilinu

Samtök NHL-leikmanna og samtök liðseigenda reyna nú hvað þau geta til að bjarga tímabilinu en Gary Bettman, forseti deildarinnar, aflýsti tímabilinu formlega á miðvikudaginn var. Sögur herma að leikmenn ætli að fallast á 45 milljón dollara launaþak til að bjarga því sem bjargað verður. Fari samningaviðræður enn einu sinni út um þúfur verður NHL-deildin fyrst allra norður-amerískra deilda til að missa úr heilt tímabil vegna kjaradeilu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×