Pál langaði að finna hungrið aftur 16. apríl 2005 00:01
Páll Kristinsson, landsliðsmaður og leikmaður Njarðvík í Intersportdeildinni í körfuknattleik, er genginn til liðs við Grindavík fyrir næsta tímabil. Kemur ákvörðunin mörgum í opna skjöldu sérstaklega í ljósi þess að Páll hefur leikið alla tíð með Njarðvík, 11 tímabil alls. "Mig langaði að prófa að breyta til," sagði Páll í samtali við Fréttablaðið. Páll sagði megintilganginn með að flytja sig um set væri að finna hungrið á nýjan leik. Samkvæmt heimasíðu Njarðvíkur vonast Páll til að eiga afturkvæmt í græna búning Njarðvíkurliðsins að ári liðnu en sögur hafa verið á kreiki um að umgjörð og þjálfaramál nýliðins tímabils hafi ekki verið Páli að skapi. "Ég fann mig ekki á síðasta ári og því upplagt að prófa eitthvað nýtt. Ég hef ekki planað neitt fram í tímann," sagði Páll. Að sögn Páls eru spennandi breytingar framundan hjá Grindvíkingum en hann vildi annars lítið tjá sig um þau mál. "Það er ýmislegt í gangi en ekki allt frágengið."Páll hefur lengi þótt einn besti framherji landsins og hóf tímabilið síðastliðið haust með miklum látum. Hann skoraði 20,4 stig, tók 7,6 fráköst, gaf 3,6 stoðsendingar og nýtti 67% skota sinna í fyrstu fimm leikjum tímabilsins. Eftir það lá leiðin niður á við en þess má geta að Anthony Lackey bættist í hópinn í sjötta leik deildarinnar og tók því töluvert frá Páli hvað framlag snertir.
Körfubolti Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Þýskaland - Curacao | Slá HM-met Íslendinga Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Þór - ÍBV | Landsbyggðarslagur af bestu gerð Fótbolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Leikmenn Portúgal bera Diogo Jota-armbönd á HM Þýskaland - Curacao | Slá HM-met Íslendinga Keflavík - FH | Erfið heimsókn til Keflavíkur. Ísak Bergmann trúlofaður Þór - ÍBV | Landsbyggðarslagur af bestu gerð Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin „Ég er þeim ævinlega þakklátur“ Náði loks sigri með Ferrari Magdeburg fékk bronsið Hulda Clara vann í Tékklandi Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Vilja sjá betri frammistöðu frá Breiðablik Fær laun greidd en fær ekki að dæma Maður dagsins: Innflytjandi sem fór snemma til Bayern Mörkin úr Bestu deildinni Fyrsti sigur á heimsmeistaramóti síðan 1990 Óvæntur varnarsigur Meistari í fyrsta skipti í 53 ár „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Amorim talinn líklegastur til að taka við AC Milan Forseti FIFA móðgaði Ítali Dagskráin: Botnbarátta í Bestu og Barcelona-kappakstur í Formúlu 1 Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Brasilía - Marokkó | Fyrsti stórleikurinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Sjá meira