Bullur í sviðsljósinu um helgina 21. febrúar 2005 00:01
Þótt leikur Burnley og Blackburn í enska bikarnum hafi endað með markalausu jafntefli verður seint sagt að ekkert fjör hafi verið á vellinum. Þrír áhorfendur stálu senunni þegar þeim tókst að hlaupa inn á völlinn. Einn þessara áhorfenda var nakinn og hljóp friðsamlega um völlinn áður en hann var handsamaður. Næstur á svið var húmoristi mikill sem breikdansaði við mikinn fögnuð áhorfenda. Sá sem síðastur hljóp á völlinn fór beina leið til Robbie Savage, leikmanns Blackburn, og las honum lífsreglurnar enda er Savage ekki sérstaklega vinsæll hjá stuðningsmönnum andstæðinganna. Hann varð síðan trylltur þegar kom að því að teyma hann af velli og í látunum tókst honum að kýla einn lögreglumann. Til þess að toppa líflegan leik fékk varnarmaður Burnley smápening í höfuðið úr stúkunni. "Það er ótrúlegt að þrem áhorfendum skuli hafa tekist að komast inn á völlinn," sagði ævareiður stjóri Blackburn, Mark Hughes. "Hvað ef hann hefði verið með hníf á sér? Svona má ekki gerast." Roy Carroll, markvörður Manchester United, fékk einnig smápening í höfuðið á Goodison Park þar sem Everton tók á móti Man. Utd. Ýmsu lauslegu var kastað inn á völlinn í þeim leik, þar á meðal farsímum. Mikil slagsmál brutust út eftir leikinn þar sem 33 voru handteknir og fimm lögregluþjónar slösuðust. Bullurnar komust einnig í sviðsljósið á leik Rangers og Celtic í Skotlandi en þar fékk Fernando Ricksen, varnarmaður Rangers, kveikjara í höfuðið. henry@frettabladid.is
Enski boltinn Íslenski boltinn Mest lesið Beint: Gunnlaugur Árni á US Open Golf Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Golf Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Golf Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Fótbolti Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open Sport Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Fótbolti Spila æfingarleik á meðan HM stendur Fótbolti Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Golf Fleiri fréttir Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Herinn kallaður á æfingu á HM Sjáðu pútt Gunnlaugs Árna á fjórðu holu Kanada - Katar | Sigur væri gulls ígildi fyrir bæði lið Svisslendingar skoruðu fjögur mörk í lokin Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton HM-framherji fær ekki að koma til Kanada Mollee: „Ég hef fulla trú á liðinu“ Þróttur og Fram fengu heimaleik í undanúrslitunum María Eva hetja Þróttar þegar þær fóru í undanúrslitin Beint: Gunnlaugur Árni á US Open Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Rástími Gunnlaugs Árna nú settur klukkan 20:20 Neymar missir af öðrum HM-leik hjá Brössum Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Ljósmyndarar eyðilögðu þjóðsönginn fyrir Tuchel Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Spila æfingarleik á meðan HM stendur Erfiðar aðstæður gætu hjálpað Gunnlaugi Gleði og gott veður á TM mótinu í Eyjum Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós „Að ganga í gegnum þetta gerði hann miklu sterkari“ Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Maður dagsins á HM: Borinn saman við Essien Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risamótum Sjá meira