Óttast eftirhermuglæpi í BNA 28. janúar 2005 00:01
Óttast er að Bandaríkjamaður sem reyndi að svipta sig lífi með því að leggja bíl sínum á lestarteina muni valda hrinu eftirhermuglæpa. Eitt tilvik er þegar í skoðun lögreglu. Juan Manuel Alvarez lagði bíl sínum þvert á lestarteina í úthverfi í Los Angeles í Kaliforníuríki á miðvikudaginn. Skömmu áður hafði hann skorið á slagæðar í úlnliðum og stungið sig í brjóstið. Alvarez snerist hins vegar hugur þegar lestin nálgaðist bíl hans og hljóp út úr honum á síðustu stundu. Bíllinn varð eftir á teinunum og olli því að þrjár lestar rákust saman. Ellefu manns létust og 200 slösuðust, þar af fjörutíu alvarlega. Alvarez situr í haldi lögreglu og hefur verið ákærður fyrir morð að yfirlögðu ráði. Atburðurinn hefur fangað athygli Bandaríkjamanna og eins og oft vill verða þá freistast aðrir vitleysingar til að herma eftir. Í gær reyndi annar Kaliforníubúi að gera það sama og lagði bíl sínum þvert á lestarteina. Hann sá þó að sér á síðustu stundu og ók bíl sínum á brott. Lögreglu hafði þá verið gert viðvart og hafði hún hendur í hári honum eftir eltingarleik. Maðurinn hefur viðurkennt að hafa ætlað að svipta sig lífi með því að láta lest aka yfir bílinn.
Erlent Fréttir Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Sjá meira