Persónuupplýsingar gegn greiðslu 12. maí 2005 00:01
Smartkort hf. hefur fengið einkaleyfi á tækjum og ferlum sem gera möguleg skipti á persónuupplýsingum gegn greiðslu, hvort sem hún er í formi fjármuna, afsláttar, bónuspunkta eða annarra fríðinda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Einkaleyfið var gefið út af Evrópsku einkaleyfastofunni (EPO) þann 27.apríl sl. en undirbúningur einkaleyfisins hefur staðið yfir frá því 1998. Samhliða einkaleyfaumsókninni hjá EPO var sótt um sama leyfi hjá Einkaleyfastofnum Bandaríkjanna (United States Patent Office). Í tilkynningunni segir að fyrir tilstilli laga um persónuvernd hafi orðið til ný gerð alþjóðlegrar auðlindar – upplýsingaauðlind einstaklinganna. Með lagasetningum um persónuvernd hafa lönd Evrópu og USA takmarkað aðgengið að persónutengjanlegum upplýsingum. Með þessum takmörkunum hefur því myndast eign einstaklingsins sem er háð takmörkunum um aðgengi. Því er um að ræða einskonar upplýsingakvóta en aðgengið að honum stjórnast af upplýstu samþykki einstaklingsins. Einkaleyfi Smartkorta nær yfir notkun auðlindarinnar sem verður til þegar upplýst samþykki einstaklingsins liggur fyrir notkun stafrænna upplýsinga sem viðkomandi einstaklingur framleiðir í sínu daglega lífi, að því er segir í tilkynningunni. Einkaleyfið hefur mjög víðfemt verndarsvið og hefur verið flokkað niður á eftirfarandi markaði sem allir eru alþjóðlegir: banka og fjármálaþjónustu, tryggingafyrirtæki, lyfjafyrirtæki, símafyrirtæki, verslanakeðjur og smásala, markaðs- og þjónustufyrirtæki, internetfyrirtæki og verslanir á Netinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Innlent Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Erlent Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Innlent Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Innlent Karl Héðinn stígur til hliðar Innlent Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Innlent Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Innlent Umferð beint um Þrengslin í dag Innlent Sökk í mýri við Stokkseyri Innlent „Þetta er grátt mál þó ég hafi ekki gert neitt rangt“ Innlent Fleiri fréttir Sérsveitin handtók mann í Garðabæ „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Einn handtekinn vegna frelsissviptingar í Árbæ Meirihluti vill banna sjókvíaeldi Almenn andstaða við sjókvíaeldi og neikvætt viðhorf til þéttingar byggðar „Þetta er grátt mál þó ég hafi ekki gert neitt rangt“ Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Sökk í mýri við Stokkseyri Gosmóðan fýkur á brott Meirihluti landsmanna ánægður með söluna á Íslandsbanka Karl Héðinn stígur til hliðar 56 prósent landsmanna neikvæð gegn þéttingu byggðar Umferð beint um Þrengslin í dag Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Ættingjar að verða fyrir hryllilegum ódæðum Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Bergþórshvoll brenndur á fjögurra daga Njáluhátíð Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Fyrsti konsertflygilinn í Skálholtskirkju vígður „Hvetjum fólk til þess að treysta okkur bara fyrir því“ Sækja mann sem datt af hestbaki Lögregla afþakkar þjónustu Skjaldar Íslands og Guðni boðar brennu Félagið Ísland-Palestína harmar skvettuna Rán og frelsissvipting í Árbæ Mótmælandi skvetti málningu á ljósmyndara Morgunblaðsins Brottfararstöð dómsmálaráðherra komin í samráðsgátt Móðir og níu mánaða barn hætt komnar í Þrengslunum Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Sjá meira