Undarlegt að kjósa þurfi á ný 24. apríl 2005 00:01
Davíð Pétursson, oddviti Skorradalshrepps, segir hreppsstjórn ætla að skoða hvort það standist að kjósa þurfi aftur um sameiningu í hreppnum. "Mér finnst undarlegt að þeir sem höfnuðu þurfi að kjósa aftur en þeir sem sögðu já fái ekki tækifæri til að endurskoða hug sinn. Þetta er klárleg mismunun." Hann segist ekki hafa trú á að niðurstöðurnar breytist þó að kosið verði á ný og bendir á góða kjörsókn og afgerandi úrslit máli sínu til stuðnings. Um ástæður þess að þorri íbúanna hafnaði sameiningu segir Davíð: "Ég hugsa að menn hafi talið sig öruggari með eigin sveitarstjórn heldur en að vera jaðarbyggð í stóru sveitarfélagi." Og spurður eftir hverju sé að slægjast í Skorradalshreppi segir hann: "Við höfum staðið vel fjárhagslega, hér er lágmarksútsvar, fasteignagjöld með því lægsta sem gerist og þjónustugjöld frekar í lægri kantinum en hitt." Þetta er í þriðja sinn sem íbúar Skorradalshrepps hafna sameiningu við önnur sveitarfélög og veltir Davíð fyrir sér hve mikið þol menn hafa til að koma hreppnum í sambúð. 64 íbúar eru nú í Skorradalshreppi en séu innan við 50 búsettir í sveitarfélagi í þrjú ár samfleytt geta stjórnvöld ákveðið að það skuli sameina öðru sveitarfélagi. Fyrir nokkrum árum voru fluttar fréttir af því að fólk búsett á höfuðborgarsvæðinu hefði skrásett sig í Skorradalshrepp til þess eins að lyfta íbúatölunni upp fyrir 50. Davíð vísar slíku á bug. "Menn bjuggu til ýmsar sögur til að koma höggi á okkur. Hér voru ekki aðrir skráðir en hér áttu að vera. Hins vegar var gert í því að fækka íbúum, menn skráðu sig úr sveitarfélaginu þó að þeir byggju hér til að hægt væri að sameina án kosninga."
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Fleiri fréttir Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Sjá meira