Fimm mínútum frá sigri 24. apríl 2005 00:01 "
Tómas gat ekki klárað lítinn skrúfbút á föstudeginum og fyrir vikið voru dregin af honum fimmtán stig," segir Skarphéðinn Skarphéðinsson, formaður Félags pípulagningameistara, um frammistöðu Tómasar Helgasonar á Norðurlandamótinu í pípulögnum sem lauk í Perlunni á laugardag. Keppendur höfðu ákveðinn tíma til að ljúka hverju verkefni fyrir sig en Tómas þraut tíminn. Hann þurfti ekki nema fimm mínútur til að ljúka verkefninu en þær fimm mínútur reyndust honum dýrar. "Það má segja að hann hafi verið fimm mínútum frá sigri því hann hefði komið sterkur inn ef honum hefði tekist að klára þetta," segir Skarphéðinn. Mótið tókst vel í alla staði og fjöldi fólks lagði leið sína í Perluna til að fylgjast með keppendum. Áhorfendur fengu mikið fyrir sinn snúð enda spennan talsverð og handtökin fyrsta flokks. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra voru bæði við setningu mótsins á fimmtudag og Ólafur og Rannveig Guðmundsdóttir, formaður Norðurlandaráðs, snæddu hátíðarkvöldverð með keppendum og aðstandendum mótsins í Perlunni á laugardagskvöld. Skarphéðinn segir að forsetinn hafi sýnt mótinu mikinn áhuga og í ljós hafi komið að hann á ekki langt að sækja áhugann á pípulögnum. "Hann hafði mjög gaman af þessu og það kom í ljós þegar hann fór að grafa aftur í sína fortíð að afi hans hafði unnið við pípulagnir í Dýrafirði á sínum tíma. Hann hefur því mikinn áhuga á pípulögnum." Tómas Helgason var fimm mínútum frá sigri.MYND/Páll
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Fleiri fréttir Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Sjá meira