Frumvarpið veikir samkeppnislög 24. apríl 2005 00:01
Samkeppnisstofnun telur nýtt frumvarp til samkeppnislaga beinlínis fela í sér veikingu á samkeppnislögum. Þetta kemur fram í afar gagnrýninni umsögn stofnunarinnar um frumvarpið. Umsögn Samkeppnisstofnunar um samkeppnislagafrumvarpið er afdráttarlaus. Þar segir meðal annars: „...frumvarp til nýrra samkeppnislaga felur í sér veikingu á samkeppnislögum.“ Eru þar einkum nefnd þrjú atriði: 1. Ekki er gert ráð fyrir auknum rannsóknarúrræðum samkeppnisyfirvalda. 2. Felld hefur verið niður mikilvæg tillaga um að samkeppnisyfirvöld geti skotið málum til dómstóla. 3. Í frumvarpinu eru gerð mun minni hæfisskilyrði til þeirra sem skipa munu fyrirhugaða stjórn Samkeppniseftirlitsins en gert var ráð fyrir í fyrri drögum. Í frumvarpinu er meðal annars lagt til að Samkeppnisstofnun og Samkeppnisráð verði lögð niður og ný stofnun, Samkeppniseftirlitið, taki við flestum verkefnum. Samkeppniseftirlitið á síðan að verða skipað þriggja manna stjórn sem skal samþykkja allar meiriháttar ákvarðanir stofnunarinnar og gæta þess að „tryggja enn frekar að meðalhófs sé gætt í öllum aðgerðum hennar.“ Samkeppnisstofnun er á móti þessum stjórnsýslubreytingum og segir í umsögninni: „Helstu forsendur fyrir tillögum frumvarpanna um breytingar á stjórnsýslu í samkeppnismálum fá ekki staðist.“ Og enn fremur að „...í frumvarpinu gætir nokkurs rökræns ósamræmis.“ Um tvær vikur eru síðan efnahags- og viðskiptanefnd fékk umsögnina í hendur. Guðmundur Sigurðsson, yfirmaður samkeppnissviðs Samkeppnisstofnunar, vildi ekki tjá sig um efni skýrslunnar. Hlutverk stofnunarinnar hefði verið að leggja mat á frumvarpið og skila umsögn til nefndarinnar. Svo væri annarra að ákveða hversu mikið mark yrði tekið á henni.
Fréttir Innlent Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Innlent Fleiri fréttir Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Sjá meira