Sakaður um dauða milljóna 5. júní 2005 00:01
Saddam Hussein verður sakaður um að bera ábyrgð á dauða milljóna manna með stríðum sínum og aftökum þegar hann verður leiddur fyrir rétt. Stefnt er að því að það verði innan tveggja mánaða. Það er af nógu að taka þegar að því kemur að dæma Saddam Hussein því ódæðisverk hans eru bærilega skrásett. Það eru stöðugt að finnast fjöldagrafir víðs vegar um landið og er talið að í þeim hvíli minnst 300 þúsund manns. En ef ætti að tína til allar hans ávirðingar er hætt við að réttarhöldin tækju mörg ár. Það hefur því verið ákveðið að halda kæruatriðunum í hófi. Laith Kuba, talsmaður íröksku ríkisstjórnarinnar, segir að hægt væri að leggja fram 500 ákærur á hendur Saddam Hussein fyrir rétti en kærurnar sem lagðar verði fram verði studdar traustu gögnum. Dómarar séu þess fullvissir að Saddam og meðstjórnendur hans verði dæmdir fyrir þau 12 atriði sem þeir verði sóttir til saka fyrir. Fyrst ákæruatriðin verða ekki fleiri en tólf verður sjálfsagt mikill fjöldi manna sem finnst að þeir hafa ekki fengið réttlæti í sínum málum en sem fyrr segir tæki það mörg ár að rétta í öllum ákæruatriðum. Litlar líkur eru á öðru en að Saddam Hussein verði sakfelldur. Hins vegar er alls ekki víst hver örlög hans verða, hvort hann verður tekinn af lífi eða settur í ævilangt fangelsi. Um það eru skiptar skoðanir, líka meðal ráðamanna í Írak.
Erlent Fréttir Mest lesið Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Fleiri fréttir Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Sjá meira