Rannsaka viðbrögð eftir neyðarkall 11. september 2005 00:01
Um hundrað og fimmtíu manns tóku þátt í leitinni að Friðriki Á. Hermannssyni sem saknað er eftir sjóslysið við Skarfasker aðfaranótt sunnudags. Hann hafði ekki fundist þegar Fréttablaðið fór í prentun. Hjón sem slösuðust alvarlega í sjóslysinu voru útskrifuð af gjörgæslu í gær. Þau hlutu alvarlega áverka að sögn vakthafandi læknis og urðu að gangast undir aðgerð. Tíu ára sonur hjónanna hefur verið útskrifaður af spítala. Að sögn Þorvalds Friðriks Hallssonar, hjá Svæðisstjórn björgunarsveita, voru fimmtán kafarar að störfum í og við Viðeyjarsund og var notast við svokölluð fjölgeislatæki sem kortleggja sjávarbotninn. Fjölmargir björgunarsveitarbátar kembdu Viðeyjarsundið. Félagið Snarfarar, sem er félag sportbátaeiganda, lagði Slysavarnarfélaginu lið og tóku félagsmenn á 25 bátum þátt í leitinni. Vinir og ættingjar Friðriks tóku sig einnig saman og gengu fjörur ásamt björgunarsveitarmönnum frá því klukkan tvö en háfjara var um klukkan hálf þrjú. Að sögn Þorvalds voru tuttugu og átta gönguhópar á ferð þegar mest var. Hátt í hálf önnur klukkustund leið frá því neyðarkall barst og þar til þremur úr bátnum var bjargað auk þess sem bráðaútkall til þyrluáhafnar Landhelgisgæslunnar barst hálftíma eftir að Neyðarlína fékk neyðarkallið. Að sögn Karls Steinars Valssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hefur ekki verið farið yfir þetta ferli ennþá en það verður gert á næstu dögum. Karl Steinar segir að enn sem komið er hafi öll áherslan verið lögð á leitina af Friðriki og því sé enn ekki búið að fara yfir þessa þætti. Viðmælandi Fréttablaðsins segir að samband hafi slitnað við drenginn sem hringdi í Neyðarlínuna og því hafi ekki allar upplýsingar komist til skila. Þar af leiðandi hafi mönnum ekki verið ljós alvara málsins í upphafi. Ingi Tryggvason, formaður Rannsóknanefndar sjóslysa, hefur litið á bátinn en segir rannsókn slyssins á frumstigi. Hann segir að miðað við skemmdirnar á bátnum líti út fyrir að hann hafi verið á mikilli ferð.
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Sjá meira