Á þriðja milljarð í fegrunarvörur 11. maí 2005 00:01
Fegurðin kostar sitt. Íslendingar vörðu vel á þriðja milljarð króna í fegrunarvörur í fyrra, en það er svipuð upphæð og fór í að reka Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri allt síðasta ár. Hér er ekki um að ræða tölur yfir hreinlætisvörur eins og sjampó, tannkrem og klósettpappír, heldur förðunar- og húðvörur: ilmvötn, varaliti, augnskugga, og naglalakk, auk ýmissa smyrsla og krema sem framleidd eru til að viðhalda unglegu útliti og fegra. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunnni var innflutningsverð þessara vara rúmur milljarður á síðasta ári og þá á eftir að bæta álagningu heildsala, smásala og virðisaukaskatti ofan á. Það gerir á þriðja milljarð. Og það eru ekki bara konur sem kaupa. Guðrún Ingólfsdóttir hjá Lyf og heilsu segir karlmenn alltaf vera að kaupa meira og meira af snyrtivörum, enda séu þær orðnar svo góðar. Þeir geti því hætt að fara í krukkurnar hjá konunum. Guðrún tók saman grunnpakka. Hann kostar tuttugu þúsund krónur. Hér segir vörurnar nauðsynjar, enda aðeins um að ræða húðvörur - engar förðunarvörur. Svo má endalaust bæta við: augnhreinsi, krem fyrir fyllri varir, grennri læri, stinnari rass og því má ætla að íslenskar konur eigi tugþúsunda virði af snyrtivörum inni á baðherbergi. Guðrún segir þetta svo sannarlega virka. En eru tveir til þrír milljarðar í fegrunarvörur há upphæð? Til samanburðar má geta þess að hagnaður Samherja á síðasta ári voru þrír milljarðar. Það kostaði þrjá milljarða að reka flugmálastjórn og álíka upphæð fór í rekstur Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri í fyrra, svo fátt eitt sé nefnt. Við þetta má bæta að talið er að heil 40 prósent sölunnar fari fram í Fríhöfninni í Keflavík.
Fréttir Innlent Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Innlent Fleiri fréttir Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Sjá meira