Eignir Yukos á uppboði í dag 19. desember 2004 00:01
Lykileignir rússneska olíufélagsins Yukos verða seldar á uppboði í dag - að sögn fréttaskýrenda á góðu verði, finnist rétti kaupandinn. Það er félag í eigu Yukos sem verður selt en það framleiðir stærsta hluta olíunnar sem Yukos selur og græðir á. Stjórnendur Yukos hafa reynt allt hvað þeir geta til að koma í veg fyrir söluna og reyna að þvinga verðið upp á við, en að því er virðist án árangurs. Talsmenn fyrirtækisins segja gjörning stjórnvalda jafngilda þjófnaði og að þetta sé hrein og bein hefndaraðgerð. Formælendur yfirvalda segja á móti að einungis sé verið að framfylgja lögum og sjá til þess að ríkið fái greiddar skattaskuldir með einhverjum hætti. Talið er víst að ríkisfyrirtækið Gazprom kaupi þann hluta Yukos sem verður boðinn upp og borgi fyrir brot af ætluðu virði fyrirtækisins. Þar með yrði ríkið á ný orðið umsvifamikið í olíuiðnaði. Reyndar keppa tvö önnur fyrirtæki um hituna en þau eru sögð eiga litla möguleika og fréttaskýrandi BBC segir að í Moskvu séu þau talin í samkrulli með Gazprom, í raun einungis til þess ætluð að það líti út fyrir að ekki eigi að færa Gazprom Yukos á silfurfati. Yukos er að stærstu hluta í eigu auðmannsins Mikhails Khodorkovskys og er almennt litið svo á að málið gegn Yukos sé í raun herferð stjórnvalda í Kreml með Vladímír Pútín forseta í broddi fylkingar. Tilgangurinn sé að knésetja Khodorkovsky og koma í veg fyrir að fyrirætlanir hans um afskipti af stjórnmálum nái fram að ganga.
Erlent Fréttir Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Fleiri fréttir Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Sjá meira