Jafnt hjá FH og Dunfermline 12. ágúst 2004 00:01
FH-ingar gerðu jafntefli, 2-2 við skoska úrvalsdeildarliðið Dunfermline á Laugardalsvelli í fyrri leik liðanna í 2. umferð forkeppni Evrópukeppni félagsliða í gærkvöld. FH-ingar hljóta að naga sig í handarbökin því eftir fínan fyrri hálfleik og tveggja marka forystu varð tankurinn tómur í síðari hálfleik og Skotarnir náðu að jafna leikinn. Eftri taugaveiklun í byrjun tóku FH-ingar völdin á vellinum og var stórhættulegir í sóknaraðgerðum sínum. Atli Viðar Björnsson gaf tóninn þegar stundarfjórðungur var liðinn en skot hans fór yfir. Mínútu síðar sundurspiluðu FH-ingar síðan vörn Dunfermline og endaði sóknin með því að Emil Hallfreðsson gaf fallega sendingu á Jónas Grana Garðarsson sem skoraði af öryggi úr miðjum teignum. Þremur mínútum síðar bætti síðan danski framherjinn Allan Borgvardt við öðru marki. Heimir Guðjónsson, fyrirliði FH-inga, átti frábæra sendingu á Guðmund Sævarsson sem var kominn einn í gegn um vörn Skotanna. Skot hans var varið en Borgvardt fylgdi vel á eftir og skoraði úr þröngu færi. Það sem eftir lifði hálfleiksins sýndu FH-ingar oft snilldartilþrif, héldu boltanum vel innan liðsins og hefðu að ósekju getað bætt við marki fyrir hlé. Jón Þorgrímur Stefánsson kom inn á varamaður fyrir Allan Borgvardt í hálfleik og hann var tvívegis nálægt því að bæta við þriðja marki Hafnarfjarðliðsins á fyrsta stundarfjórðungi hálfleiksins. Hann átti tvær fallegar rispur inn völlinn en fyrra skot hans hafnaði í stönginni og það síðara varði Stillie, markvörður Dunfermline. FH-ingar gáfu aðeins eftir um miðjan síðari hálfleikinn og í kjölfarið náði Dunfermline að minnka muninn. Það gerði Craig Brewster með skalla á 72. mínútu. Jón Þorgímur fékk síðan gullið tækifæri þremur mínútum síðar að auka forystuna á nýjan leik en skalli hans fór í þverslá marks Dunfermline. Skotarnir pressuðu síðan hressilega síðustu mínúturnar og náðu að jafna leikinn þegar nokkrar mínútur voru eftir. Það var litháíski varnarmaðurinn Andrius Skerla sem gerði það eftir darraðadans í vítateignum. FH-ingar geta sjálfum sér um kennt, þeir sprungu á limminu líkt og KR-ingar gegn Shelbourne fyrir skömmu. Þeir spiluðu mjög vel í fyrri hálfleik en eftir ágæta byrjun í síaðri hálfleik datt botninn úr leik liðsins og leikmenn Dunfermline komust á bragðið og tryggðu sér gott veganesti fyrir seinni leikinn.
Íslenski boltinn Mest lesið „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Fótbolti Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum Fótbolti „Ég held að við séum á heimleið“ Fótbolti Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Fótbolti Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Fótbolti „Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp“ Sport Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Íslenski boltinn Hefur komið Eiði Smára skemmtilega á óvart við HM Fótbolti Fleiri fréttir Óþekkti markvörðurinn kominn með fleiri fylgjendur en Tom Brady Maður dagsins á HM: „Það var ekki ég sem uppgötvaði Vini Jr.“ Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Átján ára markahæst: Nýtir pirringinn sem orku og fer glaðbeitt á EM Gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi Martin fékk stóra rós í hnappagatið Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun „Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp“ „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum „Ég held að við séum á heimleið“ Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Segja Breka á leiðinni til Benfica Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Martraðarvítaspyrnukeppni og lærisveinar Sigga Ragga úr leik Okeke farinn frá Álftanesi Børge Lund tekur við stórliði Kiel Thelma hetjan og Häcken á toppinn Sviss tryggði sér toppsætið eftir sigur á Kanada Hörð keppni milli Margrétar Láru og Mistar Bruno um Ronaldo: „Mikilvægt fyrir okkur að hann skoraði“ Kerfið hrundi á Wimbledon-mótinu vegna mikils hita Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Vinstri eða hægri? Ronaldo eða Messi? Goðsögn í alpagreinum handtekin með „töfrasveppi“ í fórum sínum Ronaldinho tók skóna af hillunni eftir níu ár: „Við munum gera eitthvað sérstakt“ Stolt að fá að spila á móti frænku sinni Hefur komið Eiði Smára skemmtilega á óvart við HM Sjá meira