Birkir framlengir við ÍBV 21. október 2004 00:01 "
Það urðu svo tíðar og óvæntar breytingar á liðinu strax eftir að Landsbankamótinu lauk að mér fannst ótækt að bæta gráu ofan á svart með því að hætta," segir Birkir Kristinsson, markvörður ÍBV í knattspyrnu. Birkir hefur endurnýjað samning sinn við liðið til eins árs í viðbót þrátt fyrir að hafa ýjað að því að nýliðið tímabil yrði hans síðasta. Engum hefði komið á óvart hefði Birkir ákveðið að hætta enda kappinn á fertugsaldri og hefur leikið yfir þrjú hundruð deildarleiki í efstu deild hér á landi. Hann segir að þrátt fyrir að stjórn ÍBV hafi óskað eftir að hann héldi áfram hafi verið auðveldara að taka þessa ákvörðun þegar horft hafi verið til þeirrar blóðtöku sem lið ÍBV varð fyrir á síðustu misserum. "Það sem átti sér stað strax að mótinu loknu gat enginn séð fyrir. Við misstum góðan þjálfara sem kom liðinu í annað sæti í deildinni. Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Bjarnólfur Lárusson eru farnir og væntanlega Einar Þór Daníelsson líka. Ekki er loku fyrir það skotið að fleiri fari annað þannig að hópurinn sem kemur saman næsta sumar er gerólíkur þeim er lauk keppni í sumar. Þannig eru margir máttarstólpar liðsins farnir og það verður þrautin þyngri bæði fyrir nýjan þjálfara og liðið að fylgja eftir góðum árangri í sumar." Landsliðsferli Birkis lauk á árinu en hann lék sinn síðasta leik fyrir íslenska landsliðið í frægum sigurleik gegn Ítalíu í sumar. Hvað varðar ferilinn með félagsliðum segir Birkir að meðan áhuginn sé fyrir hendi og meiðsl setji ekki strik í reikninginn telji hann sig hafa nóg fram að færa að svo stöddu. "Ég hef verið heppinn með að sleppa við öll meiðsli og meðan ég tel mig hafa eitthvað fram að færa í markinu held ég áfram. Ég hef einnig verið lánsamur með að geta auðveldlega stundað mitt starf meðfram fótboltanum." Þjálfun heillar Birki hins vegar lítið og segist hann efast um að hann taki slíkt að sér bjóðist það í framtíðinni. "Auðvitað sé ég um að halda ungu markvörðunum á tánum en ég sé mig ekki við almenna þjálfun þegar ferlinum lýkur. Annars er best að hafa ekki stór orð um það því hlutirnir breytast hratt." albert@frettabladid.is
Íþróttir Mest lesið Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Golf Norskur ólympíumedalíuhafi látinn eftir að eldingu laust í höfuð honum Sport Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Sport Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Golf Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Körfubolti Settur í bann fyrir að hjálpa fátækum krökkum Sport Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Handbolti Vilja hefja golfmótið á morgun: „Látum þetta ekki á okkur fá“ Golf Cecilía Rán fékk á sig fastasta skot EM til þessa Fótbolti Steven Gerrard orðinn afi Enski boltinn Fleiri fréttir Arnar Grétarsson tekinn við Fylki Grænt ljós á golfmótið þrátt fyrir gos Í beinni: Noregur - Ítalía | Íslandsbanar gegn Ítölum í átta liða úrslitum Þúsund hjólareiðakappar þeysa um hálendið um helgina Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Eigendur Burnley eignast hitt liðið í Barcelona „Þetta var bara byrjunin“ Hetjudáðir gegn Íslandi tryggðu henni sæti í byrjunarliðinu í kvöld Norskur ólympíumedalíuhafi látinn eftir að eldingu laust í höfuð honum Íslensku strákarnir töpuðu stórt í sextán liða úrslitunum Liverpool reynir líka við Ekitike Vilja hefja golfmótið á morgun: „Látum þetta ekki á okkur fá“ Sjáðu mörkin úr geggjuðum Blikasigri Settur í bann fyrir að hjálpa fátækum krökkum Aukinn áhugi á EM þrátt fyrir samkeppni við FIFA Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Cecilía Rán fékk á sig fastasta skot EM til þessa Stólarnir verða með í Evrópukeppninni í vetur Hefur ekki hugmynd hvar Ólympíugullið hans er niðurkomið „Getum ekki beðið eftir að sjá þig gera kraftaverk“ Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Steven Gerrard orðinn afi Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Dagskráin í dag: Snóker og golf, aftur Fyrrum dýrasti enski leikmaðurinn mættur í F-deildina Stuðningsmenn Palace mótmæla ákvörðun UEFA Elvar Már til Póllands „Við erum alls ekki hættir, þetta er rétt að byrja“ Sjá meira