Engin vandræði hjá FH 29. júlí 2004 00:01
FH-ingar áttu í engum vandræðum með að tryggja sér sæti í 2. umferð Evrópukeppni félagsliða í gær er liðið lagði velska liðið Haverfordwest af velli, 3-1, á heimavelli sínum í Kaplakrika, og því samanlagt 4-1. Það fór aldrei á milli mála hvort knattspyrnuliðanna væri færara á sínu sviði í gær - heimamenn í FH höfðu mikla yfirburði og þurftu engan stórleik til að vinna arfaslaka andstæðinga sína. Haverfordwest voru seinni í alla bolta og leyfðu ávallt 1-2 leikmönnum FH að leyka lausum hala inni á vellinum. Ef dæmt er út frá frammistöðu liðsins í gær er Haverfordwest í svipuðum klassa og miðlungs 1. deildarlið á íslenskum mælikvarða, ef ekki verra. Alveg frá byrjun var ljóst hvert stefndi og hafði Jónas Grani Garðarsson klúðrað tveimur upplögðum færum áður en Haverfordwest náði, þvert gegn gangi leiksins og í fyrsta skipti inn í vítateig FH, að komast yfir eftir hroðaleg mistök í vörn heimamanna. Það tók Allan Borgvardt innan við mínútu að jafna metin. Það gerði hann með afar snoturri hælspyrnu eftir fasta aukaspyrnu Emils Hallfreðssonar. Eftir markið héldu FH-ingar áfram að fá dauðafærin og sem fyrr fór Jónas Grani fremstur í flokki við að brenna af þeim - hann hefði á eðlilegum degi skorað 3-4 mörk í fyrri hálfleiknum einum. Auk þess átti Sverrir Garðarsson skalla í þverslá eftir hornspyrnu en inn vildi boltinn ekki og því var staðan jöfn þegar gengið var til búningsklefa í hálfleik. Sá síðari byrjaði afskaplega rólega og voru leikmenn FH töluvert frá sínu besta. En á 60. mínútu settu þeir í fluggírinn svo um munaði. Fyrst var það Atli Viðar Björnsson sem slapp einn í gegn en Lee Kendall í marki Haverfordwest varði vel og síðan aftur frá Emil nokkrum sekúndum síðar. Á 62. mínútu urðu hlutskiptin aftur á móti önnur er Emil skoraði framhjá Kendall eftir mikil mistök þess síðarnefnda og tveimur mínútum síðar bætti Baldur Bett við þriðja markinu eftir þunga sókn FH. Eftir þennan 5. mínútna frábæra leikkafla lögðust leikmenn ósjálfrátt aftar á völlinn og gat Ólafur Jóhannesson leyft sér að skipta út lykilmönnum. FH-ingar höfðu lokið dagsverki sínu án teljandi erfiðleika og bíður þeirra mun erfiðari leikur í næstu umferð. Í hattinum eru lið á borð við Bröndby, Hammarby og Stabæk en dregið verður í hádeginu í dag. Tommy Nielsen, sem átti mjög góðan dag í vörn FH, var ánægður með að komast áfram en vildi alls ekki mæta einhverjum af þeim dönsku liðum sem eru í hattinum. "Nei, veistu ég spilaði gegn þessum liðum svo oft þegar ég lék í dönsku deildinni að mig langar miklu frekar að mæta einhverju liði sem ég hef aldrei spilað áður gegn. Draumurinn yrði ef við mættum liði sem hefur stóran heimavöll og við myndum keppa í mikilli stemningu. Evrópukeppnin skiptir miklu máli fyrir mig því að ég var aldrei nálægt því að komast í þessa keppni þegar ég lék í Danmörku," sagði Tommy við Fréttablaðið að leik loknum. Hann var ekki á því að hið mikla álag sem er á FH-ingum þessa dagana myndi koma liðinu í koll, en það er í hörkubaráttu á öllum vígstöðvum - deild, bikar og Evrópukeppni. "Þegar við erum að spila svona mikið erum við ekki að æfa eins vel. Mér finnst persónulega miklu betra að spila sem oftast því þá kemst liðið í betra leikform og nær betur saman. Okkur langar að njóta velgengni á öllum vígstöðvum og þótt við séum komnir áfram í Evrópukeppninni þýðir það alls ekkert að við munum slaka á í deildinni né bikarnum," segir Tommy Nielsen. FH-Haverfordwest 3-1 0-1 Tim Hicks 19. 1-1 Allan Borgvardt 20. 2-1 Emil Hallfreðsson 62. 3-1 Baldur Bett 64. Dómari: Kjell Alseth (Noregi) - Mjög góður Bestur á vellinum: Tommy Nielsen Tölfræðin:Skot (á mark) 17-5 (7-1) Horn 4-0 Aukaspyrnur fengnar 10-9 Rangstöður 6-1 Mjög góður: Tommy Nielsen FH Góðir: Sverrir Garðarsson FH Emil Hallfreðsson FH Baldur Bett FH Allan Borgvardt FH Lee Kendall Haverfordwest
Íslenski boltinn Mest lesið Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Formúla 1 Trump styður við bakið á Tiger Golf Lét ekki viðbeinsbrot stoppa sig og fagnaði í fatla Fótbolti Í fyrsta sinn á þessari öld sem enginn fellur á lyfjaprófi Sport Dagskráin í dag: Átta liða úrslit FA bikarsins og úrslitakeppnir í körfuboltanum Sport Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Enski boltinn Glódís skallaði sig inn í lið umferðarinnar Fótbolti Tiger var hissa á handtökunni og hringdi í Trump forseta Golf Sindri sópaði Snæfelli en Fjölnismenn héldu sér á lífi gegn KV Körfubolti Uppgjörið: Breiðablik - FH 3-1 | Breiðablik meistarar meistaranna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Verða allir með gullmerki til að sýna liðsfélaga sínum stuðning Í fyrsta sinn á þessari öld sem enginn fellur á lyfjaprófi Dagskráin í dag: Átta liða úrslit FA bikarsins og úrslitakeppnir í körfuboltanum Lét ekki viðbeinsbrot stoppa sig og fagnaði í fatla Sindri sópaði Snæfelli en Fjölnismenn héldu sér á lífi gegn KV Trump styður við bakið á Tiger Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Dembélé með aðra tvennu gegn Toulouse „Við gátum bara ekki komið boltanum ofan í körfuna“ Doncic missir mögulega af öllum verðlaunum vegna meiðsla Glódís skallaði sig inn í lið umferðarinnar Ægir Jarl mættur til Fram Meistararnir með sópinn á lofti „Engar afsakanir, Breiðablik vann bara 3-1“ „Það er búinn að vera stígandi í hópnum í allan vetur“ Tindastóll - Njarðvík 58-88 | Njarðvík verður með sópinn á lofti í næsta leik Mo Salah fékk ráð frá Steven Gerrard Einn besti útherji NFL-deildarinnar farinn í meðferð Bikarævintýri Davíðs Smára halda áfram Gattuso hættir með sorg í hjarta Diljá flaug á hausinn en skoraði samt Afturelding áfram í sextán liða úrslit bikarsins „Svona er lífið, en allt gerist af ástæðu“ Forsetinn segir af sér og UEFA hótar Ítölum Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Uppgjörið: Breiðablik - FH 3-1 | Breiðablik meistarar meistaranna Isak gæti spilað á móti Man City um helgina og Salah er heill Draumabyrjun hjá Lindu Líf í atvinnumennskunni Enzo Fernandez verður í agabanni í næstu tveimur leikjum Chelsea Fyrrverandi markakóngur HM lagður inn á sjúkrahús Sjá meira