Sport

Nistelrooy hvíldur gegn Fenerbahce

Manchester United mun hvíla Ruud van Nistelrooy í lokaleik liðsins í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu sem fram fer á miðvikudaginn. United, sem er nú þegar búið að tryggja sér sæti í 16 liða úrslitum, mætir tyrkneska liðinu Fenerbahce. Nistelrooy hefur átt við meiðsli að stríða á ökkla að undanförnu og vonast United-menn til að kappinn geti náð sér að fullu með því að hvíla hann. "Okkur þótti upplagt að Ruud fengi tveggja leikja hvíld svo að hann gæti náð sér á strik á nýjan leik," sagði Alex Ferguson, knattspyrnustjóri United-liðsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×