Sport

Líflátshótunin skyggði á sigurinn

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segir í ævisögu sinni, sem blaðið Times birtir kafla úr í morgun, að sigur hans með Porto í Meistaradeildinni í vor hafi fallið í skuggann af líflátshótun skömmu fyrir úrslitaleikinn. Í kjölfarið fylgdu nokkrar vikur sem Mourinho segir að hafi verið helvíti líkar. Lögreglan í Portúgal rannsakaði líflátshótanirnar en í ljós kom að þar var um meðlim í glæpagengi í undirheimum Porto að ræða. Chelsea hefur beðið um aukna öryggisgæslu þegar Mourinho fer með Chelsea til Porto í næstu viku þegar liðin mætast í Meistaradeidinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×