Sjö marka tap Hauka 10. október 2004 00:01
Haukar fengu Kiel frá Þýskalandi í heimsókn í Meistaradeild Evrópu í handknattleik í gær. Í röðum Kiel eru m.a. landsliðsmenn frá Svíþjóð og Þýskalandi og hefur liðið orðið þýskur meistari sjö sinnum á síðustu tíu árum. Það var því vitað að leikurinn yrði erfiður fyrir heimamenn en gæti engu að síður orðið góð reynsla fyrir lið Hafnfirðinga. Leikurinn fór í gang af miklum krafti og var greinilegt að bæði lið ætluðu að selja sig dýrt. Gestirnir byrjuðu betur, komu en leikurinn jafnaðist um tíma út og var þá jafnt á flestum tölum. Í stöðunni 10-10 skoruðu leikmenn Kiel fjögur mörk í röð og voru Haukamenn óheppnir í sókninni. Þeir nýttu ekki upplögð færi auk þess sem að skotvalið hefði oft mátt vera betra. Stórleikur Birkis Ívars Guðmundssonar í fyrri hálfleik bjargaði Haukum frá enn meira forskoti en hann varði 12 skot í hálfleiknum. Halldór Ingólfsson var drjúgur í fyrri hálfleik, nýtti öll víti sín og skoraði 4 mörk. Haukar réðu lítið við Johan Petterson sem nýtti öll fimm skot sín í fyrri hálfleik. Staðan í leikhléi var 16-12, gestunum í vil. Lið Hauka mætti vel stemmt í byrjun seinni hálfleiks og náði að minnka muninn í eitt mark 17-18. Eftir það kom góður kafli hjá Kiel þar sem Haukar réðu lítið við vel smurða sókn gestanna sem gengu á lagið og skoruðu fjögur mörk í röð. Eftir það var ekki aftur snúið fyrir Haukanna enda munurinn á liðunum þó nokkur. Þá gerðu leikmenn Haukaliðsins sig seka um byrjendamistök, fengu t.a.m. dæmd á sig skref í tvígang og það er ekki hægt að leyfa sér gegn eins sterku liði og Kiel. Gestirnir léku ýmist 6-0 eða 4-2 vörn sem virtist oft slá Haukanna út af laginu. Christian Zeitz var bestur í liði Kiel og þá sérstaklega í seinni hálfleik þar sem hann nýtti færi sín vel. Johan Petterson, sem var bestur í liði gestanna í fyrri hálfleik, átti dapran seinni hálfleik og misnotaði öll fjögur skot sín. Það kom þó ekki að sök í vel mönnuðu liði Kiel sem vann öruggan sigur, 35-28. Vignir Svavarsson trjóndi eins og klettur í vörn Haukanna en gat lítið beitt sér lengst af vegna tveggja brottvísanna og fékk þá þriðju undir lok leiksins. Halldór Ingólfsson skoraði 8 mörk, Ásgeir Örn Hallgrímsson og Andri Stefan skoruðu 6 mörk hvor. Stressaðir p>"Við vorum ekki að spila illa en við kláruðum ekki dauðafærin nógu vel. Við vorum full-stressaðir og klúðruðum á mörgum vígstöðum. Hentum boltanum út af og þá var skipulagsleysi í liðinu. Ég er nokkuð viss um það að værum við að spila í deildinni eins og við spiluðum í kvöld, þá væri okkur að ganga betur. Það er tvennt ólíkt að spila við svona sterkt lið og hérna heima," sagði Ásgeir Örn Hallgrímsson, Haukamaður. Stigsmunur "Maður verður að taka þátt í leiknum þó það sé ekki 100% möguleikar á sigri. Maður getur ekki horft á leikinn í einhverri taugaveiklun. Tapið var óþarflega stórt. Við áttum miklu meira skilið miðað við hvernig við lékum. Við gerðum samt of mörk tæknileg mistök, misstum boltann í hendurnar á þeim og það er of dýrt á móti svona sterku liði. Þetta lýsir muninum á liðunum því það er stigsmunur á getu og hæfileikum," sagði Páll Ólafsson, þjálfari Hauka. Of stórt tap "Ég er ekki sáttur enda er þetta tap allt of stórt. Við vorum að standa okkur bærilega en enginn var samt að spila eins vel og vonir stóðu til. Við klikkuðum á dauðafærum og fáum á okkur of mörg mörk sem við hefðum hæglega getað stöðvað. Ef við hefðum leikið eftir okkar eðlilegu getu þá hefði tapið ekki orðið svona stórt," sagði Vignir Svavarsson, leikmaður Hauka. Haukarnir eiga fullt erindi í keppnina "Þetta var erfiður leikur. Haukamenn eru með gott lið og þeir eiga fullt erindi í þessa keppni. Þeir eru betri en mörg þau lið sem við erum að mæta í þýsku deildinni. Miðað við þennan leik ættum við að eiga góða möguleika og ég er bjartsýnn á framhaldið," sagði Stefan Lövgren, leikmaður Kiel.
Íþróttir Mest lesið Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Íslenski boltinn UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Fótbolti Bauluðu á verðandi US Open meistara Golf Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Körfubolti Einum mánuði yngri en Eiður Smári Íslenski boltinn Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Enski boltinn Ein vinsælasta golf YouTube-stjarna heims í Vestmannaeyjum Golf Lars Lagerbäck veit hvað er stærsta vandamál sænska liðsins Fótbolti Argentína - Austurríki | Messi gæti slegið metið Fótbolti Bröndby-bullur ráðast ekki bara á Víkinga heldur einnig á konur í hjólastól Fótbolti Fleiri fréttir Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst ÍBV - Breiðablik | Hrasa meistararnir enn á ný? Þór/KA - Þróttur | Botnliðið þarf að bíta frá sér Argentína - Austurríki | Messi gæti slegið metið Norðmenn undirbúa sig fyrir blautan leik í kvöld Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Titilbaráttunni formlega lokið í kvöld? Lars Lagerbäck veit hvað er stærsta vandamál sænska liðsins Þjálfari Íraks um Mbappé: Bað um að fá að spila með þrjá markverði Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Ein vinsælasta golf YouTube-stjarna heims í Vestmannaeyjum Sakar þýska landsliðið um óheiðarleika Messi er ekki búinn að ná Mörtu Goðsögnin fær að keppa á Wimbledon-mótinu Einum mánuði yngri en Eiður Smári Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Kom pabba sínum algjörlega á óvart á átjándu holunni á US Open Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Maður dagsins: Fyrirliði Orra úr aðhlátursefni í hetju Sjáðu þrennu Elíasar, mark þess nýfermda og svar Eyjamanna UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Kóngafólkið dansaði í klefa Curacao Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Lést uppi á hótelherbergi í draumaferð sinni á HM Kristín setti heimsmet og vann brons á HM: „Stolt af sjálfri mér“ Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Bröndby-bullur ráðast ekki bara á Víkinga heldur einnig á konur í hjólastól Karlar sem skulda meðlag í Argentínu mega ekki horfa á Messi á HM Grænhöfðaeyjar komu aftur á óvart og sögulegt hjá Mo Salah og félögum Bauluðu á verðandi US Open meistara Sjá meira